Nýtt blogg!

febrúar 13, 2008 at 9:01 pm (Nöldur) ()

Já, nú fékk ég nóg af Blogcentral!

Stundum kemst maður ekki inn á síðuna, stundum save-ast blogg, stundum ekki. Og nú breyttu þeir einhverju í stjórnborðinu og gerðu það
“geðveikt flott” en ég get ekki klikkað í gluggann til að blogga!

Þannig að ég gef bara skít í þá og færði mig hingað, og hananú!

Annars er það að frétta að ég ætla mér að hætta að nota bílinn innanbæjar. Ætla að reyna að
nota hann bara til að komast í körfuna út í Þelamörk og í langkeyrslu á milli bæja og ef ég þarf
að flytja eitthvað í stærra lagi á milli staða.

Ástæða? Þetta helvítis bensínverð! Ég er búinn að fá nóg! Líterinn alveg um 150kr! Ekki ætla
ég að borga að óþörfu undir rassgatið á þeim sem tóku alla þjóðina í rassgatið fyrir örfáum
árum með ólöglegu samráði!

7 Ummæli

  1. Ævar sagði,

    Fór í 10-11 um daginn. Hálfur líter af gosi í flösku kostar 170.
    HÁLFUR líter! Þetta er komið í ruglið…

  2. minnsti í stóra gengi sagði,

    vel orðað og annað ef þú vilt spara getur líka fengið þér dísel bíl það er mikklu ódýrara

  3. Lína Rut sagði,

    Til hamingju með nýja bloggið!

  4. Andri Már sagði,

    10-11 er náttúrulega bara í sérflokki í varðlagi. En nýjar bloggsíður eru alltaf töff

  5. María sagði,

    Úff já, bensínverð er einn af þessum hlutum sem ég forðast að hugsa um, það og mánaðarlegu afborgunina af íbúðinni minni. :S

  6. Steinunn Rögnvaldsdóttir sagði,

    Styð þetta, það er líka umhverfisvænt :)

  7. minnsti í stóra gengi sagði,

    ég er sammála þér um blogcnetral þetta er ótrúlega böggandi

Rita ummæli