John Rambo

Fór með Sindra Rögnvalds á Rambo á sunnudagskvöldið, og hún er sniiiilllld!
Loksins! Eftir margar lélegar hasarmyndir síðustu árin er hér loksins komin aftur
mynd þar sem gaurinn notar ekki karate eða álíka til að stöðva óvininn. Hann
bara rífur úr honum barkakýlið og lætur hann éta það!… Kannski ekki alveg, en
þetta er 50% rétt.
Stallone orðinn sextugur, m.a.s. 62 í ár og samt ennþá jafngóður í hasarmyndunum,
ef ekki bara betri.
Sagði dálítið skemmtilegt þegar hann var að kynna myndina. Sagði að nútíma
hasarmyndahetjur væru ekkert nema kellingar. Rambo myndi taka og rífa í
sig menn eins og James Bond og Jason Bourne. Hann sagði að það hefði verið
kominn tími fyrir Rambo að snúa aftur til að sýna mönnum hvernig alvöru
hasarmyndir eru gerðar, og hann stóð við stóru orðin. Snilldar mynd.
Lína Rut sagði,
febrúar 19, 2008 kl. 10:41 am
nú hef ég ekki séð hana.. en miðað við lýsingarnar sem ég fékk frá Heidda, sem ég bað fallega um að þurfa ekki að hlusta á, þá var þetta agalega einhæft: drepa, drepa, drepa. Ég held allavega að það þurfi að borga mér mikinn pening til að sjá þessa mynd. En svo eru myndir eins og P.S. I love you… hahaha…
Eva sagði,
febrúar 19, 2008 kl. 11:23 am
Já!! Úff nú þarf ég að draga einhvern með mér í bíó … vantar almennilegan strákavin hérna í Dk … geturðu ekki flutt hingað??
Kv. Uppáhaldsfrænka
hehe
Addi sagði,
febrúar 19, 2008 kl. 11:36 am
Ég geri samt ráð fyrir að þú hafir bara heyrt drepa, drepa en Heiddi hafi samt verið hrifinn, yes?
katacakes sagði,
febrúar 19, 2008 kl. 10:08 pm
Ég myndi vinna, lendi ég í slag við Rambó. Kjeddling.