DVD vs Divx

febrúar 21, 2008 at 4:57 pm (Kvikmyndir, Nöldur)

Mikið er ég nú sammála þessu spjaldi!
Þegar DVD kom fyrst á markaðinn var eitt helsta slagorðið þeirra:
“Og þú þarft aldrei að spóla til baka!”
En þeir sögðu fólki samt ekki frá því að þú gætir ekki heldur spólað
yfir vissa parta af disknum, og þú þarft að horfa á lista yfir allt sem
er bannaðað gera við þennan diska í hvert skipti sem þú stingur
honum í tækið!Og eins og stendur þarna á spjaldinu, að þá virðast
kvikmyndafyrirtæki halda að fólk sé fífl og nái þessu ekki nema að
þurfa að horfa á þetta í hvert einasta skipti sem það horfir á diskinn!
Málið er bara að ef menn ætla að að afrita diskinn, þá gera þeir það!
Þeir láta þetta ekkert stoppa sig frekar en reykingarmenn með
sígarettupakka sem á stendur “Reykingar drepa”.
Ef eitthvað er
þá eru menn líklegri til að verða pirraðir og afrita myndirnar
ennþá frekar. Það er auðvitað allt mest spennandi sem er bannað.

5 Ummæli

  1. Eva sagði,

    Hehe – þú ert alltaf svo brjálaður – sem er ÆÐI því þú ert bestastur (fer þessi naugðgun á íslenskri tungu nokkuð í þig?)

    En ef það stæði á DVD hulstrinu – “DVD drepur” ?? hmm … spæling

  2. Lína Rut sagði,

    hahaha.. þetta er fyndið..

  3. Ævar sagði,

    Hahahaha, shit. Þetta er svo satt! :D

  4. minnsti í stóra gengi sagði,

    steini fara að blogga meira það er gaman að lesa bloggið þitt:)

  5. ALLT LITLA GENGIÐ sagði,

    fara svo að blogga svo við getum fylgst meira með lang stæðsta bróðir okkar .kveðja fra´Arna Benoný og Jóni þór litlu bræðrum þinum

Rita ummæli