Jibbí!

apríl 29, 2008 at 5:45 pm (Daglegt líf, Skólinn) ()

Skólinn er loksins, loksins búinn! :D

Þetta er búið að vera mjög erfiður mánuður. Endalausar ritgerðir og verkefni út allan apríl og síðan auðvitað hræðilega helgin þegar söngkeppni FF var. Síðan átti ég líka að fá frí núna síðustu helgi til að læra fyrir sálfræðiprófið sem var í morgun, en síðan kom í ljós að þeir gátu bara reddað laugardeginum, þannig að ég varð að vinna föstudagsnóttin. En ég held að þetta hafi alveg gengið ágætlega, þ.e.a.s. prófið í morgun. Myndi giska á að þetta verði kannski 6-7, án þess þó að ég viti nokkuð um það þannig lagað.

En núna… BÚINN!!! :D
Byrja svo að vinna á mánudaginn næsta á næturvöktum hjá Securitas á bíl, sem felst í því að keyra á milli fyrirtækja og fylgjast með því að það sé örugglega ekki búið að brjótast inn eða að starfsfólk hafi gleymt að loka gluggum í lok vinnudagsins og þannig bjóða fólki upp á að koma inn. Verð að vinna aðra hverja viku í sumar, frá 20-8 eða 17-5 í hvort skipti. Ætla svo að liggja bara í sólbaði þess á milli í frívikunum! Ah, sweeeet… :)

Permalink 6 Ummæli

Söngkeppni FF

apríl 13, 2008 at 3:31 pm (Nöldur)

Oj… Þetta… var… ógeðsleg… helgi!

Söngkeppni FF var haldin á Akureyri í ár, sem er ekki, alls ekki gaman ef þú ert öryggisvörður í 10-11 í miðbænum. Ég hef ekki þurft að standa svona lengi í lappirnar frá því um verslunarmannahelgina. Fékk aldrei ráðrúm til að setjast aðeins niður og hvíla mig.
Eitt sem ég fatta ekki við unglinga sem fara á fyllerí, sérstaklega ekki Reykvíkingana sem koma hingað norður að djamma. Af hverju í andskotanum virðist það vera algjört möst að djamma til í minnsta lagi kl.5?? Ég var mikið að velta þessu fyrir mér í nótt, sérstaklega þar sem allir skemmtistaðir loka kl. 4, en fólk hélt áfram að hrynja inn um dyrnar til kl. 7 í morgun! Ég og starfsmaðurinn í 10-11 voru að pæla hvar þetta fólk hefði eiginlega haldið sig milli 4 og 7. Þá er ég líka að tala um að fólkið kom labbandi í hópum og virtist allt koma frá miðbænum. Ekki eins og það hefði verið í heima-partýi.
Nú ætla ég að gera lista yfir það sem fólk ætti ekki að gera þegar það mætir öryggisverði næturlagi í 10-11:
- Ekki spyrja “Hey, hvað gerist ef ég reyni að ræna staðinn?” eða ”Hey, hvað gerist ef ég kýli þig?”. Það er ekki fyndið, því þegar þú spyrð að því eru svona 90% líkur á því að þú sért sá þriðji eða fjórði sem segir það á þessari vakt.
- Ekki nota 10-11 eins og Hlemm á meðan þú bíður eftir leigubíl eða Gísla eða einhverjum öðrum vitleysingi til að sækja þig. Það er virkilega böggandi, sérstaklega þegar það eru ca. 30 manns inni í búðinni og enginn að versla, allir að bíða eftir bíl!
- Ekki reyna að faðma öryggisvörðinn ef þú þekkir hann ekki. Líkur eru á því að hann gæti kýlt þig.

Setning helgarinnar er samt líklega fullur drengur sem kom inn og var rooosalega fyndinn og spurði mig: “Hey, seljið þið ekki eitthvað í glerflöskum hérna? Langaði nefnilega að prófa dálítið sem ég sá í fréttunum”. Ég horfði illilega á hann og hann sagði þá niðurlútur: “Þetta var kannski ekkert fyndið, ha…?”

Permalink 3 Ummæli

Eyrarvegur

apríl 8, 2008 at 12:25 pm (Daglegt líf)

Fyrir þá fáu sem aldrei hafa séð íbúðina hjá mér og Kristínu:

http://www.flickr.com/photos/addisteini/sets/72157604430898629/

Permalink 1 ummæli

Jæja…

apríl 7, 2008 at 4:37 pm (Daglegt líf)

Permalink 1 ummæli

Undarleg fréttamennska og bílaplan dauðans

apríl 4, 2008 at 2:47 pm (Nöldur)

Í gær var frétt birt frétt um David Beckham mbl.is þar sem sagt var frá viðbrögðum móður hans við nærfataauglýsingunni sem hann sat fyrir í, sem flestir ættu að kannast við. Ekki frásögu færandi nema að það skrýtna við þetta allt er að kvöldið áður, á skjá 1, var David Beckham í viðtali hjá Jay Leno þar sem hann sagði frá þessu atviki. Fréttin var næstum nákvæmlega eins og hann sagði hana í þættinum, nema að mamma hans var aldrei brjáluð, heldur hringdi bara í hann þegar hún sá auglýsinguna og spurði hann “Hvað varstu að gera?”.
Hérna er fréttin:
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/04/03/mamma_beckhams_brjalud/

Það sem fór samt mest í pirrurnar á mér við þessa frétt er að fyrst þegar hún var sett inn bentu margir á að þetta væri bara copy/paste úr Jay Leno, og að það sýndi bara fram á leti og lélega fréttamennsku að “fréttamenn” gætu bara horft á spjallþætti og búið síðan til lélega frétt úr því daginn eftir. Síðar um daginn var búið að taka út möguleikann á að blogga við fréttina. Hefur greinilega farið eitthvað fyrir brjóstið á téðum fréttamanni að honum væri bent á að hann væri latur í vinnunni.
Það sem ég er allavega að fara með öllu þessu blaðri: Er það ekki orðið andskoti lélegt þegar fréttasíða býður fólki upp á að koma með skoðanir sínar á fréttum sem settar eru þar inn, en síðan geti þeir ákveðið eftir hentisemi hvort fólk megi tjá sig um þær eða ekki. Ég tek fram að ég veit að þegar eitthvað slæmt gerist, t.d. banaslys á Íslandi og þannig að þá getur maður ekki bloggað við fréttina, sem er bara eðlilegt, enda viðkvæmt mál. En að leyfa fólki fyrst að blogga við frétt, en síðan fara í fýlu út í horni og taka þann möguleika í burtu, er það ekki frekar lélegt? Ég bara spyr…

Að seinni parti fyrirsagnarinnar:
Helvítis bílaplanið við HA-Sólborg! Það hefur alltaf verið til vandræða, og nú er það orðið ennþá verra! Áður voru alltof margir bílar miðað við pláss sem var í boði, en núna eru framkvæmdir í gangi þarna vegna nýrrar byggingar á skólalóðinni, og við það minnkaði bílastæðið um heilan helling. En stoppar það fólk í að leggja þarna? Engan veginn. Það sem fer samt mest í mig er að á vissum kafla er vegurinn að stæðinu einbreiður, og sá kafli á að virka fyrir bílaumferð í báðar áttir OG fyrir gangandi fólk, sem nota bene gengur oftast í hópum, þannig að maður kemst engan veginn framhjá þeim. Og annað sem fer í mig: Stæðið er orðið fullt og búið að leggja þannig að maður komist samt á milli á stökum stað. En þá kemur einhver rosa sniðugur og leggur þar sem á greinilega að vera pláss fyrir mann til að komast út af stæðinu, þannig að allt í einu þarftu annað hvort að keyra allan hringinn eða að reyna að bakka út, sem er líka stórhættulegt, því flesta beygjur á stæðinu eru blindar. Lenti næstum í því í gær að jeppi keyrði á mig.

P.s.
Ekkert taka þessu of alvarlega sem ég er að röfla yfir hérna að ofan, sérstaklega um stæðið. Leiddist bara og ákvað að tjá mig.

Permalink 2 Ummæli