Undarleg fréttamennska og bílaplan dauðans
Í gær var frétt birt frétt um David Beckham mbl.is þar sem sagt var frá viðbrögðum móður hans við nærfataauglýsingunni sem hann sat fyrir í, sem flestir ættu að kannast við. Ekki frásögu færandi nema að það skrýtna við þetta allt er að kvöldið áður, á skjá 1, var David Beckham í viðtali hjá Jay Leno þar sem hann sagði frá þessu atviki. Fréttin var næstum nákvæmlega eins og hann sagði hana í þættinum, nema að mamma hans var aldrei brjáluð, heldur hringdi bara í hann þegar hún sá auglýsinguna og spurði hann “Hvað varstu að gera?”.
Hérna er fréttin:
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/04/03/mamma_beckhams_brjalud/
Það sem fór samt mest í pirrurnar á mér við þessa frétt er að fyrst þegar hún var sett inn bentu margir á að þetta væri bara copy/paste úr Jay Leno, og að það sýndi bara fram á leti og lélega fréttamennsku að “fréttamenn” gætu bara horft á spjallþætti og búið síðan til lélega frétt úr því daginn eftir. Síðar um daginn var búið að taka út möguleikann á að blogga við fréttina. Hefur greinilega farið eitthvað fyrir brjóstið á téðum fréttamanni að honum væri bent á að hann væri latur í vinnunni.
Það sem ég er allavega að fara með öllu þessu blaðri: Er það ekki orðið andskoti lélegt þegar fréttasíða býður fólki upp á að koma með skoðanir sínar á fréttum sem settar eru þar inn, en síðan geti þeir ákveðið eftir hentisemi hvort fólk megi tjá sig um þær eða ekki. Ég tek fram að ég veit að þegar eitthvað slæmt gerist, t.d. banaslys á Íslandi og þannig að þá getur maður ekki bloggað við fréttina, sem er bara eðlilegt, enda viðkvæmt mál. En að leyfa fólki fyrst að blogga við frétt, en síðan fara í fýlu út í horni og taka þann möguleika í burtu, er það ekki frekar lélegt? Ég bara spyr…
Að seinni parti fyrirsagnarinnar:
Helvítis bílaplanið við HA-Sólborg! Það hefur alltaf verið til vandræða, og nú er það orðið ennþá verra! Áður voru alltof margir bílar miðað við pláss sem var í boði, en núna eru framkvæmdir í gangi þarna vegna nýrrar byggingar á skólalóðinni, og við það minnkaði bílastæðið um heilan helling. En stoppar það fólk í að leggja þarna? Engan veginn. Það sem fer samt mest í mig er að á vissum kafla er vegurinn að stæðinu einbreiður, og sá kafli á að virka fyrir bílaumferð í báðar áttir OG fyrir gangandi fólk, sem nota bene gengur oftast í hópum, þannig að maður kemst engan veginn framhjá þeim. Og annað sem fer í mig: Stæðið er orðið fullt og búið að leggja þannig að maður komist samt á milli á stökum stað. En þá kemur einhver rosa sniðugur og leggur þar sem á greinilega að vera pláss fyrir mann til að komast út af stæðinu, þannig að allt í einu þarftu annað hvort að keyra allan hringinn eða að reyna að bakka út, sem er líka stórhættulegt, því flesta beygjur á stæðinu eru blindar. Lenti næstum í því í gær að jeppi keyrði á mig.
P.s.
Ekkert taka þessu of alvarlega sem ég er að röfla yfir hérna að ofan, sérstaklega um stæðið. Leiddist bara og ákvað að tjá mig.
Lína Rut sagði,
apríl 5, 2008 kl. 8:50 am
þetta stæði er náttúrulega það versta í heiminum. ef þú mætir seint, þá bara sorrý: ekkert bílastæði fyrir þig! þetta er náttúrulega bara rugl. svo ekki sé minnst á holurnar í því…
litla gengið sagði,
apríl 6, 2008 kl. 4:37 pm
vá þetta er bara orðið svipað og heima hjá þér á patró þar sem eru bara 2 stæði fyrir 4 jeppa einn fólksbíl og fjórhjól