Söngkeppni FF

apríl 13, 2008 at 3:31 pm (Nöldur)

Oj… Þetta… var… ógeðsleg… helgi!

Söngkeppni FF var haldin á Akureyri í ár, sem er ekki, alls ekki gaman ef þú ert öryggisvörður í 10-11 í miðbænum. Ég hef ekki þurft að standa svona lengi í lappirnar frá því um verslunarmannahelgina. Fékk aldrei ráðrúm til að setjast aðeins niður og hvíla mig.
Eitt sem ég fatta ekki við unglinga sem fara á fyllerí, sérstaklega ekki Reykvíkingana sem koma hingað norður að djamma. Af hverju í andskotanum virðist það vera algjört möst að djamma til í minnsta lagi kl.5?? Ég var mikið að velta þessu fyrir mér í nótt, sérstaklega þar sem allir skemmtistaðir loka kl. 4, en fólk hélt áfram að hrynja inn um dyrnar til kl. 7 í morgun! Ég og starfsmaðurinn í 10-11 voru að pæla hvar þetta fólk hefði eiginlega haldið sig milli 4 og 7. Þá er ég líka að tala um að fólkið kom labbandi í hópum og virtist allt koma frá miðbænum. Ekki eins og það hefði verið í heima-partýi.
Nú ætla ég að gera lista yfir það sem fólk ætti ekki að gera þegar það mætir öryggisverði næturlagi í 10-11:
- Ekki spyrja “Hey, hvað gerist ef ég reyni að ræna staðinn?” eða ”Hey, hvað gerist ef ég kýli þig?”. Það er ekki fyndið, því þegar þú spyrð að því eru svona 90% líkur á því að þú sért sá þriðji eða fjórði sem segir það á þessari vakt.
- Ekki nota 10-11 eins og Hlemm á meðan þú bíður eftir leigubíl eða Gísla eða einhverjum öðrum vitleysingi til að sækja þig. Það er virkilega böggandi, sérstaklega þegar það eru ca. 30 manns inni í búðinni og enginn að versla, allir að bíða eftir bíl!
- Ekki reyna að faðma öryggisvörðinn ef þú þekkir hann ekki. Líkur eru á því að hann gæti kýlt þig.

Setning helgarinnar er samt líklega fullur drengur sem kom inn og var rooosalega fyndinn og spurði mig: “Hey, seljið þið ekki eitthvað í glerflöskum hérna? Langaði nefnilega að prófa dálítið sem ég sá í fréttunum”. Ég horfði illilega á hann og hann sagði þá niðurlútur: “Þetta var kannski ekkert fyndið, ha…?”

3 Ummæli

  1. Elmar Freyr sagði,

    Já, sjitt hvað ég öfunda þig af þessari vinnu á svona kvöldi! En já fólk sem vinnur í afgreiðslu ætti að þekkja a.m.k. hluta af þessari frásögn þinni

  2. Sóla sagði,

    HAhahahahaHAHAHAHAHAhahhahahahaaaaa… aaaaaaaaaaaa!!! Vá aumingja þú.. hehehe ;)

  3. Anna Gurðun sagði,

    hmmm ég man þegar ég djammaði á akureyri.. þá endaði ég stundum í eftirpartý í íbúð sem var á ráðhústorgi þannig það getur bara vel verið félagi að þau hafi verið að koma úr heimapartíum….
    en svo má náttúrulega taka til greina að unglingar frá Reykjavík og öðrum stöðum finnst alveg afspyrnu gaman að hanga á ráðhústorgi… veit ekki hvað málið er með það en hey! það virðist vera mega kúl…

    ég get stundum verið ógeðslega fyndin þegar ég er full, en hef nú samt ekki lagt það í vana minn að bögga Securitas verði… en dyraverðir passið ykkur!! haha..

    það að krakkarnir hangi inn í 10-11 á meðan þau eru að bíða eftir bíl þá má taka með í reikninginn hvort það hafi verið kalt úti… því ef það var fínasta veður gat fólk alveg hangað á göngugötunni, ef það var aftur á móti mega kalt þá skil ég börnin mjöööög vel, sérstaklega þar sem það var búið að loka öllum skemmtistöðum til þess að hanga á….

    krökkum á þessum aldri finnst það kúl ef maður djammar til 6-7 á morgnanna… allavega ef maður fer heim fyrir 5 er maður algjör aumingi skal ég segja þér…

    mæli með því að þú prófir að vera öryggisvörður í 10-11 á Austurstræti… þar eru sko fleiri en 30 manns inni að hanga, og vörðurinn er sko alvarlega að fá meira heldur en nokkur aulaleg komment á sig…

    áskorun???

    hehe love you sæti…

    kv

    Djammistinn ;)

Rita ummæli