Jibbí!

apríl 29, 2008 at 5:45 pm (Daglegt líf, Skólinn) ()

Skólinn er loksins, loksins búinn! :D

Þetta er búið að vera mjög erfiður mánuður. Endalausar ritgerðir og verkefni út allan apríl og síðan auðvitað hræðilega helgin þegar söngkeppni FF var. Síðan átti ég líka að fá frí núna síðustu helgi til að læra fyrir sálfræðiprófið sem var í morgun, en síðan kom í ljós að þeir gátu bara reddað laugardeginum, þannig að ég varð að vinna föstudagsnóttin. En ég held að þetta hafi alveg gengið ágætlega, þ.e.a.s. prófið í morgun. Myndi giska á að þetta verði kannski 6-7, án þess þó að ég viti nokkuð um það þannig lagað.

En núna… BÚINN!!! :D
Byrja svo að vinna á mánudaginn næsta á næturvöktum hjá Securitas á bíl, sem felst í því að keyra á milli fyrirtækja og fylgjast með því að það sé örugglega ekki búið að brjótast inn eða að starfsfólk hafi gleymt að loka gluggum í lok vinnudagsins og þannig bjóða fólki upp á að koma inn. Verð að vinna aðra hverja viku í sumar, frá 20-8 eða 17-5 í hvort skipti. Ætla svo að liggja bara í sólbaði þess á milli í frívikunum! Ah, sweeeet… :)

6 Ummæli

  1. Katana sagði,

    Mmmm. Hljómar vel. Síðan þarf að bjóða Kötum í mat þegar hún kemur heim.

  2. Lína Rut sagði,

    ég klára í dag.. bara 3 klst í sumarfrí ;)

  3. Anna Gurðun sagði,

    má ég benda á þá staðreyna að ég HATA einstaklinga sem að ganga í HA… ástæðan þarf ekkert að vera rituð hér en við skulum orða það þannig að mitt FYRSTA próf er núna á föstudaginn…

    takk fyrir mig

  4. Anna Gurðun sagði,

    sorry.. ég er bara bitur.is hehe

  5. Ævar sagði,

    Var að klára. Er kominn í “frí”. Ertu að koma suður?

  6. minnsti í stóra gengi sagði,

    sjámust þann 19

Rita ummæli