Bensín
Djöfulsins rugl er þetta orðið!
Bensín á 160kr líterinn, og bara útlit fyrir að það muni hækka! Mér reiknast svo til að eins og er kostar það mig um 15.000kr að keyra heim á Patró og til baka, en það eru alveg heilir 4 dagar í að ég fari heim, þannig að það getur vel breyst… til hins verra. Ég man nú eftir því að fyrir um ári kostaði það um 10þús fyrir mig að komast heim.
Ég hvet alla sem það geta að hætta að nota bílinn sinn! Fætur og hjól duga vel til að komast á milli staða, auk þess sem að það er hollara og mengar minna. Ég ætla að reyna að nota minn einungis í langferðir eins og þegar ég fer heim á Patró.
Af hverju ættum við að gera þessum olíurisum til geðs og halda bara áfram að kaupa af þeim bensín eins og ekkert sé? Ég held að það sé núna loksins komið að því að menn þurfa að gera það sem átti að gera við mörgum, mörgum árum: Skipta um orkugjafa! Hvað varð um vetnisbílana? Þeir eru búnir að vera í bígerð í mörg, mörg ár, en samt bólar ekki ennþá á þeim á almennum markaði. Og þessir helvítis rafmagnsbílar eru ekki rétta leiðin. Eins og til dæmis þessi G-Wiz bíll. Hann fellur saman við minnsta árekstur og drepur alla sem í honum eru. Hvet alla til að fletta upp árekstraprófinu á honum í Top Gear á youtube. Hann tapaði fyrir eldhúsborði…
Shit… ég er svo PIRRAÐUR á þessu bensínrugli!
Addi Crimefighter! ;)
“Pínu” ýkt fyrirsögn, en pínu-ponsu til í þessu.
Lenti í því aðfaranótt mánudags að vera kallaður út í fyrsta alvöru innbrotið mitt. Var kominn á staðinn 4 mín eftir að kerfið fór í gang og var einn þarna í um 3 mín. Pínu scary… En þjófarnir voru horfnir. Skildist samt að þeir hefðu náðst síðar um nóttina.
Síðan á aðfaranótt miðvikudags varð allt vitlaust og við fórum í 3 innbrotaköll sömu nóttina. Við náðum þjófunum ekki í fyrsta innbrotinu, en síðan gerðu þeir mistök í seinna skiptið. Þeir skildu einn sinna manna eftir! Við náðum honum og löggan kom síðan og tók hann og allan heiðurinn. Figures… Hinir sem voru viðrinir málin reyndu síðan einu sinni enn að brjótast inn en náðust þá.
S.s. allt kolvitlaust. Sjaldan verið jafn mörg innbrot á skömmum tíma.
Er annars að fara að tæta upp í garðinum mínum og búa til almennilegan göngustíg að húsinu. Eins og er er þetta bara moldardrulla með smá mini-möl ofan á sem festist í skónum manns og maður ber síðan inn í húsið. Ekki sniðugt. Ég ætla s.s. að grafa um 80cm djúpan skurð, sem er ca. 90 cm á breiddina og 4,7 metrar á lengdina. Hann verður síðan fylltur með grjóti í stað moldar og ofan á það fer síðan fín möl sem hellurnar koma ofan á. Þetta á s.s. að hindra að stéttina fari á eitthvað flakk vegna hitabreytinga.
Jæja, búið í bili.
Vinna, vinna, vinna…
Jæja, byrja loks í kvöld í sumarvinnunni. Verð að vinna frá 20-8 næstu 7 daga, fæ síðan frí í einn dag og vinn síðan líklega í 4 daga í röð frá kl. 17-5 og fæ svo 4 daga í frí, vinn síðan 5 daga í röð frá kl. 17-5 og fer svo heim á Patró í ca. viku og verð þar yfir sjómannadagshelgina þar sem planið er að spila ásamt Ævari bróður og Magga úr kennaradeildinni. Þannig að: stuð, stuð!
Er annars farinn að verða pínu óþolinmóður eftir því að fá einkunnir! Ætti að vera búinn að fá allavega 1-2 einkunnir af 4 núna, en neibb. Eitthvað gengur þetta hægt.
Var síðan í Rvk um helgina í fermingu hjá Kaðlínu, systur hennar Kristínar. Ég og Kristín fórum þangað á fimmtudagskvöldið og gerðum ýmislegt skemmtilegt fram að fermingunni á sunnudeginum. Fórum m.a. út að borða á Pizza Hut með Ævari, Maríu, Andra og Lilju og eftir það fórum við í keilu (mínus María reyndar, sem var að læra undir próf í prestnáminu sínu). Ævar Þór tók og rústaði okkur með 25 stigum meira en næsti maður, sem er undarlegt eftir að hann náði 1 stigi, síðan 3 og 3 í fyrstu þrem tilraununum af 10. Held að hann hafi verið að gabba okkur í byrjun. :p
Síðan keyptum við nokkra sniðuga hluti. T.d. svona lítið eldhúsborð á hjólum frá IKEA. Hérna er mynd: http://ikea.is/IKEA/vorur/Default.asp?ew_8_p_id=4640 . Þetta kemur s.s. við hliðina á eldavélinni okkar og verður mjög þægilegt vinnuborð þegar maður er að elda. Síðan keyptum við líka flottan prentara frá Elko, og hér er mynd af honum: http://www.elko.is/elko/product_detail/Default.asp?ec_item_16_searchparam4=guid=fc826ac4-f2f3-49c4-80d0-6def095948b8&product_category_id=804&ew_10_p_id=35252&ec_item_14_searchparam5=serial=IP2600&ec_item_12_searchparam1=categoryid=804&serial=IP2600&ew_13_p_id=35252&status=specific&ec_item_14_searchparam2=serial=IP2600#elko
Jæja, nenni ekki að skrifa meira í bili.