Vinna, vinna, vinna…
Jæja, byrja loks í kvöld í sumarvinnunni. Verð að vinna frá 20-8 næstu 7 daga, fæ síðan frí í einn dag og vinn síðan líklega í 4 daga í röð frá kl. 17-5 og fæ svo 4 daga í frí, vinn síðan 5 daga í röð frá kl. 17-5 og fer svo heim á Patró í ca. viku og verð þar yfir sjómannadagshelgina þar sem planið er að spila ásamt Ævari bróður og Magga úr kennaradeildinni. Þannig að: stuð, stuð!
Er annars farinn að verða pínu óþolinmóður eftir því að fá einkunnir! Ætti að vera búinn að fá allavega 1-2 einkunnir af 4 núna, en neibb. Eitthvað gengur þetta hægt.
Var síðan í Rvk um helgina í fermingu hjá Kaðlínu, systur hennar Kristínar. Ég og Kristín fórum þangað á fimmtudagskvöldið og gerðum ýmislegt skemmtilegt fram að fermingunni á sunnudeginum. Fórum m.a. út að borða á Pizza Hut með Ævari, Maríu, Andra og Lilju og eftir það fórum við í keilu (mínus María reyndar, sem var að læra undir próf í prestnáminu sínu). Ævar Þór tók og rústaði okkur með 25 stigum meira en næsti maður, sem er undarlegt eftir að hann náði 1 stigi, síðan 3 og 3 í fyrstu þrem tilraununum af 10. Held að hann hafi verið að gabba okkur í byrjun. :p
Síðan keyptum við nokkra sniðuga hluti. T.d. svona lítið eldhúsborð á hjólum frá IKEA. Hérna er mynd: http://ikea.is/IKEA/vorur/Default.asp?ew_8_p_id=4640 . Þetta kemur s.s. við hliðina á eldavélinni okkar og verður mjög þægilegt vinnuborð þegar maður er að elda. Síðan keyptum við líka flottan prentara frá Elko, og hér er mynd af honum: http://www.elko.is/elko/product_detail/Default.asp?ec_item_16_searchparam4=guid=fc826ac4-f2f3-49c4-80d0-6def095948b8&product_category_id=804&ew_10_p_id=35252&ec_item_14_searchparam5=serial=IP2600&ec_item_12_searchparam1=categoryid=804&serial=IP2600&ew_13_p_id=35252&status=specific&ec_item_14_searchparam2=serial=IP2600#elko
Jæja, nenni ekki að skrifa meira í bili.
Ævar sagði,
maí 11, 2008 kl. 7:43 pm
Þetta var svona “White men can’t jump”-trick sem ég tók á ykkur.
Svo þarf ég bara að koma norður í re-match.