Addi Crimefighter! ;)

maí 15, 2008 at 10:40 pm (Daglegt líf)

“Pínu” ýkt fyrirsögn, en pínu-ponsu til í þessu.

Lenti í því aðfaranótt mánudags að vera kallaður út í fyrsta alvöru innbrotið mitt. Var kominn á staðinn 4 mín eftir að kerfið fór í gang og var einn þarna í um 3 mín. Pínu scary… En þjófarnir voru horfnir. Skildist samt að þeir hefðu náðst síðar um nóttina.

Síðan á aðfaranótt miðvikudags varð allt vitlaust og við fórum í 3 innbrotaköll sömu nóttina. Við náðum þjófunum ekki í fyrsta innbrotinu, en síðan gerðu þeir mistök í seinna skiptið. Þeir skildu einn sinna manna eftir! Við náðum honum og löggan kom síðan og tók hann og allan heiðurinn. Figures… Hinir sem voru viðrinir málin reyndu síðan einu sinni enn að brjótast inn en náðust þá.

S.s. allt kolvitlaust. Sjaldan verið jafn mörg innbrot á skömmum tíma.

Er annars að fara að tæta upp í garðinum mínum og búa til almennilegan göngustíg að húsinu. Eins og er er þetta bara moldardrulla með smá mini-möl ofan á sem festist í skónum manns og maður ber síðan inn í húsið. Ekki sniðugt. Ég ætla s.s. að grafa um 80cm djúpan skurð, sem er ca. 90 cm á breiddina og 4,7 metrar á lengdina. Hann verður síðan fylltur með grjóti í stað moldar og ofan á það fer síðan fín möl sem hellurnar koma ofan á. Þetta á s.s. að hindra að stéttina fari á eitthvað flakk vegna hitabreytinga.

Jæja, búið í bili.

1 ummæli

  1. Katana sagði,

    Það er ekkert annað. Endilega láttu mig vita þegar þú veist hvenær þú ætlar að grafa þennan skurð. Ég er með nokkuð góða reynslu í skurðagreftri ;)

Rita ummæli