Bensín

maí 23, 2008 at 10:53 pm (Nöldur)

Djöfulsins rugl er þetta orðið!

Bensín á 160kr líterinn, og bara útlit fyrir að það muni hækka! Mér reiknast svo til að eins og er kostar það mig um 15.000kr að keyra heim á Patró og til baka, en það eru alveg heilir 4 dagar í að ég fari heim, þannig að það getur vel breyst… til hins verra. Ég man nú eftir því að fyrir um ári kostaði það um 10þús fyrir mig að komast heim.

Ég hvet alla sem það geta að hætta að nota bílinn sinn! Fætur og hjól duga vel til að komast á milli staða, auk þess sem að það er hollara og mengar minna. Ég ætla að reyna að nota minn einungis í langferðir eins og þegar ég fer heim á Patró.

Af hverju ættum við að gera þessum olíurisum til geðs og halda bara áfram að kaupa af þeim bensín eins og ekkert sé? Ég held að það sé núna loksins komið að því að menn þurfa að gera það sem átti að gera við mörgum, mörgum árum: Skipta um orkugjafa! Hvað varð um vetnisbílana? Þeir eru búnir að vera í bígerð í mörg, mörg ár, en samt bólar ekki ennþá á þeim á almennum markaði. Og þessir helvítis rafmagnsbílar eru ekki rétta leiðin. Eins og til dæmis þessi G-Wiz bíll. Hann fellur saman við minnsta árekstur og drepur alla sem í honum eru. Hvet alla til að fletta upp árekstraprófinu á honum í Top Gear á youtube. Hann tapaði fyrir eldhúsborði…

Shit… ég er svo PIRRAÐUR á þessu bensínrugli!

5 Ummæli

  1. litlu bræður þínir fyrir vestan sagði,

    hlökkum til að fá þig vestur erum farnir að telja dagana niður þar til þú kemur

  2. yngsti í stóra gengi sagði,

    þú veist að það er talið að bensín lítrin fari í 250 kr/l

  3. Lína Rut sagði,

    Þú veist samt að ef fólk hættir að kaupa bensín verður konan þín atvinnulaus og þú verður öryggisvörður á reiðhjóli.

  4. Addi sagði,

    Nema auðvitað að konan skipti bara um vinnu og komið verði með aðra orkugjafa fyrir bíla.

  5. Steinunn Rögnvaldsdóttir sagði,

    Fróðlegur punktur með rafmagnsbílana, þetta vissi ég bara ekki!

    En twin-bílar?

    Ég fíla fætur og hjól :)

Rita ummæli