Allt að gerast

júní 5, 2008 at 5:04 pm (Daglegt líf)

Fór til Patró í 5 daga í síðustu viku til að hitta liðið heima og spila á sjómannadaginn með Ævari bróður og Steina Frey. Ég keyrði vestur beint eftir 12 tíma næturvakt aðfaranótt þriðjudags, og ég mæli ekki með því.

Annars gekk ágætlega að spila, en ég held ég komi ekki þangað aftur til að spila, allavega ekki á meðan vissir aðilar eru að sjá um að skipuleggja þetta. Málið er s.s. að maður bauð sig fram til að spila, en þurfti síðan að hætta við þar sem maður hafði engan tíma til að hittast og æfa fyrir þetta, auk þess sem að enginn söngvari var kominn (hljómsveitin samanstóð upphaflega af mér, Magga í bekknum mínum, bróður hans og síðan átti að finna söngvara). Allavega, ég s.s. segi gaurnum sem er yfir þessu öllu 12 dögum fyrir áætlað spilerí hvernig málin standa. Og hann verður bara leiðinlegur. Hringir í mig (ég sendi e-mail) og segir að við þurfum bara að koma. Aumingja hann búinn að senda plaköt í prentun með nafni hljómsveitarinnar (sem var síðan ekki 100% rétt skrifað einu sinni. NorðVestur. Það er Norð-Vestur. Bandstrikið skiptir máli…) og segir mér að það kosti 60þús að prenta upp á nýtt. Ég hef þá samband við Steina Frey sem er svo æðislegur að vilja endilega taka þátt í þessu. Maggi og bróðir hans voru hins vegar búnir að lofa sér í vinnu (enda átti þessu að hafa verið hætt) þannig að þetta endaði bara með mér, Steina og Ævari. Síðan svona ofan á allt fengum við bara að spila í um 20 mín, þó að við ættum að fá 30 mín á sviðinu. Og sá sem sá um skipulagninguna lítur ekkert smá stórt á sig. Lætur eins og hann sé sá besti í bransanum og virkar mjög falskur. Maður er besti vinur hans ef maður gerir eins og hann vill, en ef þú gerir það ekki þá verður hann bara fjandsamlegur við mann og getur maður séð votta vel fyrir stórmennskubrjálæði.

Ég gæti haldið endalaust áfram, t.d. það sem var illa gert í sambandi við skipulagninguna og fleira, en ég nenni ekki að segja frá öllu.

Að öðru. Lappi litli (hundurinn hans Ævars bróðurs) er fluttur til mín og Kristínar, sem er mjög gaman. Hins vegar mætti hann alveg vera kurteisari við fólk úti á götu þegar maður er að labba með hann (hann geltir). Síðan fór hann í geldingu í gær og ég bjóst við að hann yrði bara dasaður og rólegur. En óóónei. Ég hef aldrei séð hann hreyfanlegri, og sló margoft met sitt í stökkhæð. Vona að hann róist í vikunni þegar hann hættir að finna til á viðkvæma svæðinu sínu.

Loks get ég sagt ykkur frá því að ég er að fara að hitta Evu frænku í Danmörku frá 20.-27.júlí og verður það örugglega megastuð! :) Hún verður að finna upp á einhverju rosalegu sniðugu til að gera með mér (ég veit að þú ert að lesa þetta, Eva). ;)

3 Ummæli

  1. litlu bræður þínir fyrir vestan sagði,

    það er honum lappa litla til afsökunar hægt að seigja að hann er snáser og er bara að verja ykkur fyrir ókunngum það er honum eðlegt að verja sitt fólk enda taldir góðir varðhundar

  2. Lína Rut sagði,

    flýgurðu héðan? hvað kostar?

  3. litlu bræður þínir fyrir vestan sagði,

    hey hvað er eiginlega að ske þú hefur ekkert bloggað í lengri tíma þetta er meyri seigja orðið sv gamalt hjá þér að þú ert farinn að skipuleggja næstu vestur ferð til okkar jafnvel bara í næstu viku hlökkum til að sjá þig alltaf gaman að fá stóra bróðir í heimsókn

Rita ummæli