Bíladagar á Akureyri
Þetta er nú meiri helvítis vitleysan…
Allt í algjöru rugli í bænum, menn spólandi út um allan bæ allan sólarhringinn, brjótandi umferðarlög, aðallega með hraðakstri, bejandi mann og annan og til að toppa það ráðast þeir á lögregluna. Á meðan íbúar bæjarins segja núna nóg komið segja skipuleggjendur “Hey, ekki benda á okkur. Það eru allir svo stilltir á daginn þegar við erum með dagkskrá í gangi. Svo er þetta líka svo gott fyrir efnahaginn”. En lítum þá aðeins á þessa fullyrðingu. Fyrir hverja er þetta gott? Lögregluna, sem þarf að eiga við skrílinn eftir að sólin er sest? Búðarstarfsmenn, og þá sérstaklega greyin sem vinna í verslunum sem eru opnar langt fram á nótt eða jafnvel allan sólarhringinn? Íbúana, sem þurfa að þola lætin í fullum unglingum og spólandi vitleysingum? Nei. Þetta er gott fyrir búðarEIGENDUR, sem koma nú ekki nálægt því sjálfir að þurfa að eiga við þetta lið. Þeir bara hirða ágóðann. Þetta hefur síðan í för með sér aukið álag á fólkið sem vinnur þarna og fær ekkert hærra tímakaup eða bónus þó vinnan sé miklu meiri en venjulega.
Síðan er bara sorglegt að sjá alla þessa dýru, fallegu bíla í höndunum á 17-18 ára strákum sem kunna ekki að fara vel með þá, heldur nota þetta sem tæki til að eyðileggja dekk og valda eins miklum hávaða og hægt er. Og í hvert sinn sem bílar æddu fram hjá mér um helgina á fleygiferð og jafnvel í spyrnu við annan bíl beið ég alltaf eftir að þeir myndu skrúfa niður rúðurnar, stinga höfðunum út og öskra: “Vúúú! Sjáið hvað ég er með stórt typpi, yeah!”. Í sjálfu sér er þetta bara sorglegt…
Steinunn Rögnvaldsdóttir sagði,
júní 19, 2008 kl. 6:30 pm
Fokking bíladagar…
Lína Rut sagði,
júní 20, 2008 kl. 8:48 am
Jább, þetta er skömm. Illa farið með fallega bæinn okkar. Hugmyndin er í sjálfu sér allt í lagi, en fólkið sem sækir hátíðina til skammar.
Ég er allavega dauðslifandifegin að þetta er búið, og það verður ekki annað svona fyrr en á næsta ári. Og þá fer maður vonandi bara úr bænum!
minnsti í stóra gengi sagði,
júní 20, 2008 kl. 11:20 pm
steini hvenar kemur þú vestur það er einn lítill alltaf að spyrja eftir þér