Nýtt húsgagn
Þar sem ég hef alltaf svo gaman af því að láta fólk vita þegar ég kaupi eitthvað nýtt í íbúðina, þá er hér mynd af því nýjasta:

Þetta er s.s. fallegi, nýji skenkurinn minn, sem tekur sig bara vel út við hlið nýlega sófans míns.
Annars er það að frétta að ég ætla að hætta hjá Securitas eftir sumarið. Þetta er alls ekki eins nice vinna og maður gæti haldið. Vaktirnar eru langar, lotan er löng (ein vika), það verður mjög þreytandi að vera alltaf einn í bíl, mig langar að sofa í rúminu mínu á sama tíma og venjulegt fólk. Auk þess er margt sem manni líkar ekki við þetta starf. T.d. viss ógeð sem búa í fjölbýli sem við erum að vakta og eru þekkt fyrir að drekka alla daga og nætur og ógna fólki með hnífum og labba um hverfið á nærbuxunum, ælandi og mígandi yfir allt. Á svona fólk ekki að vera á hæli, í stað þess að búa eitt í íbúð þar sem það getur haldið hávær partý og ógnað nágrönnunum?
Annars er ég búinn að vinna núna 5 nætur í röð og 3 eftir. Manni líður eins og maður sé búinn að vinna í heilan mánuð. Maður missir allt tímaskyn í þessari vinnu…
María sagði,
júlí 23, 2008 kl. 8:28 pm
Úff vá, hljómar alls ekki sniðugt. Þú getur örugglega fundið eitthvað miklu skemmtilegra en þetta.