Í fríi
Jey! Loksins búinn að vinna hjá Securitas! Sem þýðir að nú get ég farið að sofa á venjulegum tíma eins og annað fólk og vaknað á venjulegum tíma. Það reyndar gengur frekar illa að laga þetta… síðasta vaktin var aðfaranótt föstudagsins 15.ágúst og hér sit ég kl. 6 að morgni á miðvikudegi eftir að hafa náð að sofna í um 1 klst í nótt. Ég er búinn að fá nóg af því að reyna að snúa sólarhringnum við og ætla að gera það sem hefur virkað best hingað til: Vaka í ca. 1 og hálfan sólarhring og fara síðan drulluþreyttur að sofa fyrir miðnætti í kvöld.
Annars er það að frétta að ég fékk mér “venjulega” vinnu, þ.e.a.s. dagvinnu og verð að vinna hjá Rúmfó um helgar í vetur. Það leggst bara ágætlega í mig, held ég. Verður gott að geta átt kvöldin til að slaka á og geta horft á sjónvarp og farið í bíó og svona.
Skólinn byrjar síðan á mánudaginn næsta, þó að nýnemavikan byrji á morgun og við í stjórninni (já, kallinn bara í stjórn kennaranema við HA) ætlum með nýnemana út að borða annað kvöld á Plaza. Það verður vonandi bara stuð.
Síðan er maður að reyna að laga íbúðina til. Tók og tætti í sundur framhliðina á baðinu mínu. Hún var s.s. þannig gerð að einhver hefur í den sett tréplötu þarna fyrir, lokað henni alveg þannig að ekkert loft komst inn (eða út, sem var verra) og síðan bara flísað yfir allt saman. Allavega, flísarnar voru byrjaðar að detta og í ljós komu rakablettir í plötunni. Þannig að ég tók mig til, tók lítinn klaufhamar og tætti plötuna í sundur. Fékk síðan nýja plötu og setti á hana tvær loftristar til að það andi undir baðið. Þannig á að gera þetta! Hitt var bara heimskulegt!
Góða saga, segðu hana aftur…
Jæja, þetta er ágætt í bili. Farinn að horfa á Ísland-Pólland í handbolta
It’s been a long time
Vá, held að það hafi aldrei eða allavega sjaldan liðið jafn langur tími á milli blogga hjá mér. En hér kemur það helsta:
Fór til Danmerkur 20.-27.júlí í heimsókn Evu frænku í Köben. Byrjaði ferðin á því að ég fékk í fyrsta skiptið nóg pláss fyrir lappirnar á mér í flugvél, og þetta er Iceland Express sem við erum að tala um! Þannig að ferðin út var fín. Kláraði m.a.s. eina bók á leiðinni.
Eva og kærastinn hennar, Sigge (jebb, danskur) tóku síðan á móti mér á vellinum. Á meðan ég var þarna gerði ég ýmislegt skemmtilegt. Fór t.d. í Tívólí og í bíó á Dark Knight. Hún var SNILLD!!! Og ég elska kerfið hjá Dönum. Þú kaupir miða og þú færð SÆTISNÚMER! Ekkert smá þægilegt að vita það að þú þarft ekki að slást við fólk um ásættanlegt sæti í salnum þegar öllum er hleypt inn 2 mín áður en myndin byrjar eins og á Íslandi. Jamm, en síðan sátum við eitt kvöld að sumbli og var það alveg ágætt. Þess á milli fór maður bara á flakk um borgina og svitnaði og svitnaði, enda var hitinn alla dagana á bilinu 20-30 gráður.
Á leiðinni heim fékk ég síðan alvöru Iceland Express vél. Þröngt fyrir lappirnar, feit kona við hlið mér sem gat ekki einu sinni sett sætisborðið fyrir framan sig niður af því að maginn var of stór! Og síðan var lítill öskrandi krakki á bakvið okkur. Ah, almennigsfarrými…
Síðan er versló loksins búin. Var að vinna alla helgina og var það ekkert gífurlega gaman. Mér er illa við ölvað fólk sem þarf að vera með læti og gera eitthvað ótrúlega heimskulegt eins og að ráðast á aðra, brjóta flöskur á götunum, öskra útaf engu og ég veit ekki hvað og hvað. Stundum saknar maður þess að búa á litlum stað eins og Patró. Þar getur maður fengið að vera í friði ef maður vill það, en á Akureyri fær maður skrílinn sendan heim til sín, pakkaðann inn í fallegan pakka með sætri slaufu… eða illa lyktandi, alltof litlum smábíl með of mörgum farþegum. Same diff. Bærinn var síðan eins og vígvöllur eftir hverja nótt, glerbrot og pizzakassar og alls konar drasl út um allt. En síðan segja fréttirnar að helgin hafi gengið fyrir sig eins og best verður á kosið. Já, já… hvað eru nokkur slagsmál, drykkjulæti og tvær nauðganir á milli vina?
Já, ég er bitur, gamall kall…