It’s been a long time
Vá, held að það hafi aldrei eða allavega sjaldan liðið jafn langur tími á milli blogga hjá mér. En hér kemur það helsta:
Fór til Danmerkur 20.-27.júlí í heimsókn Evu frænku í Köben. Byrjaði ferðin á því að ég fékk í fyrsta skiptið nóg pláss fyrir lappirnar á mér í flugvél, og þetta er Iceland Express sem við erum að tala um! Þannig að ferðin út var fín. Kláraði m.a.s. eina bók á leiðinni.
Eva og kærastinn hennar, Sigge (jebb, danskur) tóku síðan á móti mér á vellinum. Á meðan ég var þarna gerði ég ýmislegt skemmtilegt. Fór t.d. í Tívólí og í bíó á Dark Knight. Hún var SNILLD!!! Og ég elska kerfið hjá Dönum. Þú kaupir miða og þú færð SÆTISNÚMER! Ekkert smá þægilegt að vita það að þú þarft ekki að slást við fólk um ásættanlegt sæti í salnum þegar öllum er hleypt inn 2 mín áður en myndin byrjar eins og á Íslandi. Jamm, en síðan sátum við eitt kvöld að sumbli og var það alveg ágætt. Þess á milli fór maður bara á flakk um borgina og svitnaði og svitnaði, enda var hitinn alla dagana á bilinu 20-30 gráður.
Á leiðinni heim fékk ég síðan alvöru Iceland Express vél. Þröngt fyrir lappirnar, feit kona við hlið mér sem gat ekki einu sinni sett sætisborðið fyrir framan sig niður af því að maginn var of stór! Og síðan var lítill öskrandi krakki á bakvið okkur. Ah, almennigsfarrými…
Síðan er versló loksins búin. Var að vinna alla helgina og var það ekkert gífurlega gaman. Mér er illa við ölvað fólk sem þarf að vera með læti og gera eitthvað ótrúlega heimskulegt eins og að ráðast á aðra, brjóta flöskur á götunum, öskra útaf engu og ég veit ekki hvað og hvað. Stundum saknar maður þess að búa á litlum stað eins og Patró. Þar getur maður fengið að vera í friði ef maður vill það, en á Akureyri fær maður skrílinn sendan heim til sín, pakkaðann inn í fallegan pakka með sætri slaufu… eða illa lyktandi, alltof litlum smábíl með of mörgum farþegum. Same diff. Bærinn var síðan eins og vígvöllur eftir hverja nótt, glerbrot og pizzakassar og alls konar drasl út um allt. En síðan segja fréttirnar að helgin hafi gengið fyrir sig eins og best verður á kosið. Já, já… hvað eru nokkur slagsmál, drykkjulæti og tvær nauðganir á milli vina?
Já, ég er bitur, gamall kall…
fköldskylan þín fyrir vestan sagði,
ágúst 5, 2008 kl. 9:41 am
gaman hjá þér greynilega en ekki gleima því besta við sigge að hann á ættir að rekja til íslands jæja og eitt til að kæta þig Árni litli bróðir þinn lærði nítt orð í gær það var bitta hann kvaddi ævar þegar hann fór út í gærkveldi og sagði bæ bitta svo tönglaðist hann á þessu orði í allt gærkvöld því við hlógum svo af honum þegar hann sagði þetta við ævar
Steinunn sagði,
ágúst 6, 2008 kl. 2:56 pm
“En síðan segja fréttirnar að helgin hafi gengið fyrir sig eins og best verður á kosið. Já, já… hvað eru nokkur slagsmál, drykkjulæti og tvær nauðganir á milli vina?”
Já akkúrat, þessi normalísering á ofbeldi, sóðaskap, óhólegri áfengisneyslu og kynferðisafbrotum er eiginlega bara óhugnaleg.