Geymslan okkar Kristínar

september 26, 2008 at 1:14 pm (Daglegt líf)

Jæja, “stúdíóið” er svo gott sem komið (fyrir utan tækin) :)

Þetta verður auðvitað ekki bara stúdíó, heldur líka góður staður til að sitja og læra. Hér eru fyrir og eftir myndir.

Fyrir:
Geymsla by addisteini.

Eftir:
Geymsla eftir breytingar by addisteini.

Massa töff þó ég segi sjálfur frá ;)

Permalink 3 Ummæli

“Hann er tannlaus, greyið”

september 25, 2008 at 1:14 pm (Daglegt líf)

Á morgun, kl. 13:45, mun ég fara til tannlæknis og láta rífa úr mér tvær tennur. Þetta verður gert til að hægt sé að búa til pláss til að færa framtennurnar mínar aftar svo hægt sé að laga bitið mitt. Gaman… búið að segja mér að ég verði óvígur eftir þetta og muni bara eyða helginni í að vorkenna sjálfum mér upp í rúmi. Vona að vestfirsku genin segi til sín og ég bíti á jaxlinn (vel orðað?) og geri eitthvað uppbyggilegra en að hanga bara upp í rúmi.

En að einhverju skemmtilegra!

Ég er að fá mér “stúdíó”! :)
Ég nota gæsalappir þar sem að þetta er auðvitað ekki ekta stúdíó, heldur bara litla geymslan mín sem ég mun koma til með að breyta (set inn myndir þegar þetta er tilbúið).
Ég keypti mér þetta hérna um daginn:

Þetta er s.s. upptökugræjan sjálf. Átti lítið tæki sem heitir M-audio Fast Track Guitar, sem ég gaf Ævari bróður eftir að ég keypti þetta nýja. Tónabúðin var með 50% afslátt á þessu tæki, þannig að maður bara varð að skella sér á þessi kostakaup.
Síðan verður þetta keypt næst, líklega bara strax eftir mánaðamót:

Þetta er s.s. Behringer Xenyx 1002 mixer sem ég mun tengja við upptökugræjuna. Það er nefnilega enginn pre-amp í upptökutækinu (get illa útskýrt hvað það er) sem gerir það að verkum að ég þarf þennan mixer til að allt virki eðlilega.
Og að lokum mun þetta verða keypt, óvíst hvenær samt:

Þetta er CAD GXL2200SP stúdíó mic sett, einn fyrir söng og einn fyrir hljóðfæri. Töff sett sem þyrfti líklega að koma að utan. Held að enginn sé með umboð fyrir þetta á Íslandi.

Síðan er maður í góðum málum í hljóðfæradeildinni, þar sem maður er með Korg Triton Le hljómborð, Washburn WI14 rafmagnsgítar, Washburn D10S kassagítar og rafbassa sem ég man ekkert hvað heitir.

Jæja, hættur í bili…

Permalink 2 Ummæli

Spangir!

september 6, 2008 at 11:58 am (Daglegt líf, Nöldur)

Jahá… kallinn er bara kominn með spangir…

Þær voru settar í í gær, en bara á efri tennurnar þar sem að ég er með of skakkt bit til að fá á neðri tennurnar strax. En eins slæmt og það er að fá spangir þá er ágætt að ég gat fengið mér glærar spangir sem fer minna fyrir en þessum venjulegu. Sjá mynd

http://drhungvu.com/yahoo_site_admin/assets/images/Clear_braces.32800820_std.JPG

Bara svona til öryggis ef einhver var að pæla, að þá á ég ekkert í þessum tönnum. Fann þessa mynd bara á netinu.

Aðalböggið samt við að fá spangirnar er ekki að þær séu slæmar útlitslega (sem þær eru svo sem ekki) heldur er ömurlegt að fá sér að borða og allt festist í þeim!

En jæja… ég ætla að reyna að fá mér eitthvað að borða… gæti tekið smá tíma…

Permalink 1 ummæli