Spangir!

september 6, 2008 at 11:58 am (Daglegt líf, Nöldur)

Jahá… kallinn er bara kominn með spangir…

Þær voru settar í í gær, en bara á efri tennurnar þar sem að ég er með of skakkt bit til að fá á neðri tennurnar strax. En eins slæmt og það er að fá spangir þá er ágætt að ég gat fengið mér glærar spangir sem fer minna fyrir en þessum venjulegu. Sjá mynd

http://drhungvu.com/yahoo_site_admin/assets/images/Clear_braces.32800820_std.JPG

Bara svona til öryggis ef einhver var að pæla, að þá á ég ekkert í þessum tönnum. Fann þessa mynd bara á netinu.

Aðalböggið samt við að fá spangirnar er ekki að þær séu slæmar útlitslega (sem þær eru svo sem ekki) heldur er ömurlegt að fá sér að borða og allt festist í þeim!

En jæja… ég ætla að reyna að fá mér eitthvað að borða… gæti tekið smá tíma…

1 ummæli

  1. Lína Rut sagði,

    piff, afhverju tókstu ekki mynd af þínum eigin munni til að blogga með?
    Það hefðu líka verið fínar heimildir þegar spangirnar fara svo.. ;)

Rita ummæli