Göngustígur

október 13, 2008 at 4:34 pm (Daglegt líf)

Það er reyndar dálítið síðan ég kláraði þetta, en hér koma myndir af göngustígnum okkar:

Fyrir:
Gamli göngustigurinn by addisteini.

Í vinnslu:
Hola i stað göngustigs by addisteini.

Eftir:
Nýji göngustigurinn 2 by you.

Permalink 3 Ummæli

Afmæli!

október 5, 2008 at 1:12 am (Daglegt líf)

Lappi litli verður 1 árs 7. október og héldum við Kristín því kökuboð föstudaginn 3. október til að halda upp á það. :)
Hér eru nokkrar myndir frá afmælisdeginum:
Boðskortið frá Lappa by you.
Boðskortið (jú, jú… við sendum boðskort)

Lappi og félagar by you.
Lappi og félagar

Lappi með afmælisgjöf frá Linu by you.
Afmælisgjöf frá Línu (hann drap hana um klukkustund síðar…)

Afmæliskakan hans Lappa by you.
Flotta afmæliskakan hans Lappa (hann fékk því miður ekki bita)

Permalink 1 ummæli

Bræður í heimsókn

október 2, 2008 at 9:13 am (Daglegt líf, Nöldur)

Eldri bræður mínir, Ævar og Þorbergur, eru í heimsókn hjá mér og Kristínu núna og verða það fram á næsta sunnudag.

Þorbergur kom reyndar einum degi fyrr en Ævar, á mánudeginum, og fór ég m.a. með Þorberg á körfuboltaæfingu með gömlu köllunum í Skotfélaginu. Hann stóð sig bara alveg ágætlega og skoraði nokkur stig og svona. Síðan er aftur æfing í kvöld, og jafnvel pæling að kíkja með strákana á handboltaleik með KA (Akureyri) eftir það.

Keypti síðan mixerinn minn (sjá að neðan) í gær, og er það bara snilld. Ég notaði tækifærið og ræddi við Pétur í Tónabúðinni um stúdíómíkrafóna. Hann ráðlagði mér að fá mér þennan:

Þetta er M-audio Nova stúdíó mic. Ég s.s. ákvað að hætta við hitt settið, m.a. vegna þess að maður veit ekkert um gæði vörunnar og því betra að versla við menn sem maður þekkir aðeins og veita ábyrgð og góða þjónustu. Önnur ástæða er líka gengi krónunnar, sem er orðin verðlausari en notaður skeinipappír vegna aðgerða ríkisins með Glitnir. Bravó, Geir… *klapp… klapp… klapp*

Jæja, ætla að fara að gera eitthvað…

Permalink 2 Ummæli