Goody Gumz – Ætli snjókarl hafi sál?

desember 11, 2008 at 6:37 pm (Uncategorized)

Nú getið þið sem lesið þetta blogg fengið að heyra og m.a.s. eiga jólalagið margumtalaða.
Þeir sem vilja heyra geta sótt lagið hingað:

http://www.reverbnation.com/goodygumz

Vona ég að sem flestir geti notið lagsins. Okkur þótti allavega gaman að taka það upp og vonandi skín það í gegn og nær að smita einhverja.

Permalink 1 ummæli

Þannig fór um sjóferð þá

desember 11, 2008 at 12:50 am (Daglegt líf, Tónlist)

Lagið komst ekki áfram í jólalagakeppninni… :p

En við látum það ekki stoppa okkur. Lagið á að fara í almenna spilun á Rás 2 og líka búið að senda eintak til Bylgjunnar og Voice. Síðan er bara að sjá hvað verður úr því. Hvet fólk endilega til að senda inn óskalagaósk (fyndið orð) í Poppland og biðja um “Ætli snjókarl hafi sál?” með Goody Gumz ef það vill hjálpa okkur að koma laginu til landans. ;)

Þó ég sé kannski ekki alveg hlutlausasti aðilinn í þessu máli og því ekki endilega hægt að taka mark á mínu áliti, að þá finnst mér þetta eitthvað loðin lög sum sem komust í úrslit. Bara sum ekki góð. Endilega hlustið hér:
http://www.ruv.is/heim/vefir/ras2/poppland/jolalagakeppni/

Annars er það að frétta að prófin eru búin. Djöfull er þetta leiðinlegur andskoti… En er sem betur fer kominn í gott jólafrí núna, þó ég verði reyndar að vinna í Rúmfó 13.-20.des. Eftir það er það bara heim í sæluna á Patró og slaka á áður en nýtt ár tekur við.

Permalink Rita ummæli

Jólalagakeppni

desember 2, 2008 at 1:44 am (Tónlist)

Ég, ásamt öðrum, mun taka þátt í Jólalagakeppni rásar 2 hjá Popplandi í ár.

Ég kom heim frá Reykjavík í gær þar sem ég eyddi helginni í stúdíói með einvala liði tónlistarmanna sem heita Ómar, Steini Freyr og Ævar Þór.

Forsagan er sú að ég ákvað fyrir mánuði að taka þátt eftir að hafa heyrt auglýsingu hjá Rás 2. Ævar Þór heyrði af því og skrifaði óumbeðinn texta að jólalagi, sem var mjög fallega gert af honum. Ég samdi síðan lagið, sem samanstóð af píanóhljómum og einfaldri laglínu. Þegar Ómar svo heyrði af því bauðst hann til að vinna í laginu með mér og bætti laglínuna og tók upp demó. Steini Freyr bauðst síðan til að hjálpa okkur að taka upp og hljóðblanda lagið ef við gætum komið til Reykjavíkur. Við slógum bara til og fórum viku síðar til hans og eyddum helginni í að taka upp lagið. Við notuðum þá tækifærið fyrst við vorum fyrir sunnan og fengum Ævar til að syngja lagið, enda töldum við lagið henta röddinni hans vel.

Ekkert smá gott að eiga svona góða vini sem eru svona viljugir til að taka þátt í þessu með manni. Útkoman varð betri en maður hafði þorað að vona og komu allir með álit og hugmyndir að útsetningunni.

Ég tek samt fram að fyrst fer lagið í gegnum forval, þar sem dómnefnd velur 6 lög sem fara í úrslit í Popplandi og síðan verður netkosning meðal hlustenda. Við erum mátulega bjartsýnir og vonum bara hið besta.

Permalink Rita ummæli