Þannig fór um sjóferð þá
Lagið komst ekki áfram í jólalagakeppninni… :p
En við látum það ekki stoppa okkur. Lagið á að fara í almenna spilun á Rás 2 og líka búið að senda eintak til Bylgjunnar og Voice. Síðan er bara að sjá hvað verður úr því. Hvet fólk endilega til að senda inn óskalagaósk (fyndið orð) í Poppland og biðja um “Ætli snjókarl hafi sál?” með Goody Gumz ef það vill hjálpa okkur að koma laginu til landans.
Þó ég sé kannski ekki alveg hlutlausasti aðilinn í þessu máli og því ekki endilega hægt að taka mark á mínu áliti, að þá finnst mér þetta eitthvað loðin lög sum sem komust í úrslit. Bara sum ekki góð. Endilega hlustið hér:
http://www.ruv.is/heim/vefir/ras2/poppland/jolalagakeppni/
Annars er það að frétta að prófin eru búin. Djöfull er þetta leiðinlegur andskoti… En er sem betur fer kominn í gott jólafrí núna, þó ég verði reyndar að vinna í Rúmfó 13.-20.des. Eftir það er það bara heim í sæluna á Patró og slaka á áður en nýtt ár tekur við.