Búinn að fá heilsugrillið mitt! :D
Jebb, náði 100 kílóa markinu í morgun.
Og þar með fékk ég verðlaunin mín: leyfi til að kaupa mér heilsugrill. Ég skipti þó um skoðun frá grillinu sem ég sýndi hérna á síðunni í þar síðustu færslu og keypti mér aðeins vandaðara grill, þetta hérna:

Það var samt ekki mikill verðmunur, þannig að þetta eru töluvert betri kaup að ég held.


Núverandi þyngd…
103 kg. Kílói léttari en síðasta sunnudag og samtals 7 kg farin síðan 5. janúar.
Bara 3kg í viðbót!
Nú vantar mig bara ca. 3kg upp á til að fá þetta hérna:

Búið að langa í svona í smátíma, og konan lofaði að maður mætti kaupa sér eitt stykki þegar maður næði undir 100kg. Samkvæmt vigtinni í Átaki er ég ca. 103kg (reyndar 101 á vigtinni heima, en við miðum við þá í Átaki) þannig að þetta er alveg að fara að gerast!
Breytt plan
Ég mun líklega ekki ná 102 kg eins og stefnan var fyrst. En það er í lagi, það kemur að lokum.
Ég ákvað nefnilega að byrja að lyfta þessa vikuna, þannig að nú minnkaði ég brennsluna úr 60 mín í 30 mín og lyfti síðan eftir það. Og samkvæmt því sem manni hefur verið sagt af svo mörgu fólki mun maður geta komið til með að standa í stað eða jafnvel þyngjast aðeins áður en maður byrjar að léttast, þar sem vöðvar séu þyngri en fita.
Þannig að ég mun líklega ekki stefna á neinar ákveðnar þyngdir fyrir hverja viku núna, heldur setja inn þáverandi þyngd hvern sunnudag.
WWII
Ég þarf víst aftur í stríð við vigtina þessa vikuna…
Vigtun í dag, stóð í stað frá síðasta sunnudag í 105 kg. Nú á að fara enn verr með vigtina og takmarkið er að ná 102 næsta sunnudag.
4 vikur, 5 kíló farin, 15 kíló eftir
Takmark síðustu viku var að fara úr 107,5kg niður í 105kg. Það tókst, með herkjum.
Er ekki með neitt ákveðið takmark fyrir næstu vigtun. Yrði sáttur með 103,5kg.
Get ekki beðið eftir að ná undir 100kg.