Bara 3kg í viðbót!

febrúar 17, 2009 at 2:40 pm (Daglegt líf, Ræktin)

Nú vantar mig bara ca. 3kg upp á til að fá þetta hérna:

Búið að langa í svona í smátíma, og konan lofaði að maður mætti kaupa sér eitt stykki þegar maður næði undir 100kg. Samkvæmt vigtinni í Átaki er ég ca. 103kg (reyndar 101 á vigtinni heima, en við miðum við þá í Átaki) þannig að þetta er alveg að fara að gerast! :)

1 ummæli

  1. allir heima á patró sagði,

    nú er bara að skella sér vestur fyrstu bollurnar komnar í ofninn ætlum að baka 300-500 súkkulaði bollur sumar með miklum rjóma velkominn í kaffi ef þú nennir vestur

Rita ummæli