Bílasaga Aðalsteins
2001:
Árið sem ég fékk bílpróf. Byrjaði á svona bíl:
Þetta er Mazda 323 árgerð 1986. Ég keypti hana af afa mínum heitnum á 50þús krónur. Hann hélt lífi í ca. 1 ár, en þá gaf vélin eftir. Hún gekk, en bíllinn fór að eyða 20 lítrum á hundraðið. Hafði eytt ca. 7 fyrir það. Hann endaði ævi sína síðan á bílahaugum Patreksfjarðar.
2004:
Næsti bíll sem ég fékk var töluvert betri:

Þetta er Toyota Touring árgerð 1992. Hann fékk ég fyrir ekki neitt frá mömmu og pabba. Æðislegur bíll, komst allt. Ég ákvað síðan að kaupa mér Honduna mína og Ævar bróðir átti að fá Toyotuna. Hann endaði samt hjá stelpu frá Patró og síðasta sem ég heyrði af honum var að hann hefði verið afskráður.
2006:
Nú erum við komin að núverandi bíl:

Honda Accord árgerð 1996. Fallegur bíll, ekki því að neita. En undanfarið er hann búinn með alla sénsana sína og kominn tími til að skipta út. Hann eyðir 15-17 lítrum á hundraðið innanbæjar og þarf að gera við handbremsuna, skipta um spindla báðum megin að framan og bremsudiska og bremsuklossa að framan. Síðan í morgun tók bíllinn upp á því að beygja í báðar áttir í einu. Vinstra dekkið til vinstri og hægra dekkið til hægri. Spindilkúlan hafði gefið sig.
Nú er því svo komið að ég vil annan bíl.
2009: ?