It’s been a long time

ágúst 4, 2008 at 8:27 pm (Daglegt líf, Kvikmyndir, Nöldur)

Vá, held að það hafi aldrei eða allavega sjaldan liðið jafn langur tími á milli blogga hjá mér. En hér kemur það helsta:

Fór til Danmerkur 20.-27.júlí í heimsókn Evu frænku í Köben. Byrjaði ferðin á því að ég fékk í fyrsta skiptið nóg pláss fyrir lappirnar á mér í flugvél, og þetta er Iceland Express sem við erum að tala um! Þannig að ferðin út var fín. Kláraði m.a.s. eina bók á leiðinni.
    Eva og kærastinn hennar, Sigge (jebb, danskur) tóku síðan á móti mér á vellinum. Á meðan ég var þarna gerði ég ýmislegt skemmtilegt. Fór t.d. í Tívólí og í bíó á Dark Knight. Hún var SNILLD!!! Og ég elska kerfið hjá Dönum. Þú kaupir miða og þú færð SÆTISNÚMER! Ekkert smá þægilegt að vita það að þú þarft ekki að slást við fólk um ásættanlegt sæti í salnum þegar öllum er hleypt inn 2 mín áður en myndin byrjar eins og á Íslandi. Jamm, en síðan sátum við eitt kvöld að sumbli og var það alveg ágætt. Þess á milli fór maður bara á flakk um borgina og svitnaði og svitnaði, enda var hitinn alla dagana á bilinu 20-30 gráður.
    Á leiðinni heim fékk ég síðan alvöru Iceland Express vél. Þröngt fyrir lappirnar, feit kona við hlið mér sem gat ekki einu sinni sett sætisborðið fyrir framan sig niður af því að maginn var of stór! Og síðan var lítill öskrandi krakki á bakvið okkur. Ah, almennigsfarrými…

Síðan er versló loksins búin. Var að vinna alla helgina og var það ekkert gífurlega gaman. Mér er illa við ölvað fólk sem þarf að vera með læti og gera eitthvað ótrúlega heimskulegt eins og að ráðast á aðra, brjóta flöskur á götunum, öskra útaf engu og ég veit ekki hvað og hvað. Stundum saknar maður þess að búa á litlum stað eins og Patró. Þar getur maður fengið að vera í friði ef maður vill það, en á Akureyri fær maður skrílinn sendan heim til sín, pakkaðann inn í fallegan pakka með sætri slaufu… eða illa lyktandi, alltof litlum smábíl með of mörgum farþegum. Same diff. Bærinn var síðan eins og vígvöllur eftir hverja nótt, glerbrot og pizzakassar og alls konar drasl út um allt. En síðan segja fréttirnar að helgin hafi gengið fyrir sig eins og best verður á kosið. Já, já… hvað eru nokkur slagsmál, drykkjulæti og tvær nauðganir á milli vina?

Já, ég er bitur, gamall kall…

Permalink 2 Ummæli

DVD vs Divx

febrúar 21, 2008 at 4:57 pm (Kvikmyndir, Nöldur)

Mikið er ég nú sammála þessu spjaldi!
Þegar DVD kom fyrst á markaðinn var eitt helsta slagorðið þeirra:
“Og þú þarft aldrei að spóla til baka!”
En þeir sögðu fólki samt ekki frá því að þú gætir ekki heldur spólað
yfir vissa parta af disknum, og þú þarft að horfa á lista yfir allt sem
er bannaðað gera við þennan diska í hvert skipti sem þú stingur
honum í tækið!Og eins og stendur þarna á spjaldinu, að þá virðast
kvikmyndafyrirtæki halda að fólk sé fífl og nái þessu ekki nema að
þurfa að horfa á þetta í hvert einasta skipti sem það horfir á diskinn!
Málið er bara að ef menn ætla að að afrita diskinn, þá gera þeir það!
Þeir láta þetta ekkert stoppa sig frekar en reykingarmenn með
sígarettupakka sem á stendur “Reykingar drepa”.
Ef eitthvað er
þá eru menn líklegri til að verða pirraðir og afrita myndirnar
ennþá frekar. Það er auðvitað allt mest spennandi sem er bannað.

Permalink 5 Ummæli

John Rambo

febrúar 19, 2008 at 9:07 am (Kvikmyndir) ()

Fór með Sindra Rögnvalds á Rambo á  sunnudagskvöldið, og hún er sniiiilllld!
Loksins! Eftir margar lélegar hasarmyndir síðustu árin er hér loksins komin aftur
mynd þar sem gaurinn notar ekki karate eða álíka til að stöðva óvininn. Hann
bara rífur úr honum barkakýlið og lætur hann éta það!… Kannski ekki alveg, en
þetta er 50% rétt.
Stallone orðinn sextugur, m.a.s. 62 í ár og samt ennþá jafngóður í hasarmyndunum,
ef ekki bara betri.
Sagði dálítið skemmtilegt þegar hann var að kynna myndina. Sagði að nútíma
hasarmyndahetjur væru ekkert nema kellingar. Rambo myndi taka og rífa í
sig menn eins og James Bond og Jason Bourne. Hann sagði að það hefði verið
kominn tími fyrir Rambo að snúa aftur til að sýna mönnum hvernig alvöru
hasarmyndir eru gerðar, og hann stóð við stóru orðin. Snilldar mynd.

Permalink 4 Ummæli