Bræður í heimsókn

október 2, 2008 at 9:13 am (Daglegt líf, Nöldur)

Eldri bræður mínir, Ævar og Þorbergur, eru í heimsókn hjá mér og Kristínu núna og verða það fram á næsta sunnudag.

Þorbergur kom reyndar einum degi fyrr en Ævar, á mánudeginum, og fór ég m.a. með Þorberg á körfuboltaæfingu með gömlu köllunum í Skotfélaginu. Hann stóð sig bara alveg ágætlega og skoraði nokkur stig og svona. Síðan er aftur æfing í kvöld, og jafnvel pæling að kíkja með strákana á handboltaleik með KA (Akureyri) eftir það.

Keypti síðan mixerinn minn (sjá að neðan) í gær, og er það bara snilld. Ég notaði tækifærið og ræddi við Pétur í Tónabúðinni um stúdíómíkrafóna. Hann ráðlagði mér að fá mér þennan:

Þetta er M-audio Nova stúdíó mic. Ég s.s. ákvað að hætta við hitt settið, m.a. vegna þess að maður veit ekkert um gæði vörunnar og því betra að versla við menn sem maður þekkir aðeins og veita ábyrgð og góða þjónustu. Önnur ástæða er líka gengi krónunnar, sem er orðin verðlausari en notaður skeinipappír vegna aðgerða ríkisins með Glitnir. Bravó, Geir… *klapp… klapp… klapp*

Jæja, ætla að fara að gera eitthvað…

Permalink 2 Ummæli

Spangir!

september 6, 2008 at 11:58 am (Daglegt líf, Nöldur)

Jahá… kallinn er bara kominn með spangir…

Þær voru settar í í gær, en bara á efri tennurnar þar sem að ég er með of skakkt bit til að fá á neðri tennurnar strax. En eins slæmt og það er að fá spangir þá er ágætt að ég gat fengið mér glærar spangir sem fer minna fyrir en þessum venjulegu. Sjá mynd

http://drhungvu.com/yahoo_site_admin/assets/images/Clear_braces.32800820_std.JPG

Bara svona til öryggis ef einhver var að pæla, að þá á ég ekkert í þessum tönnum. Fann þessa mynd bara á netinu.

Aðalböggið samt við að fá spangirnar er ekki að þær séu slæmar útlitslega (sem þær eru svo sem ekki) heldur er ömurlegt að fá sér að borða og allt festist í þeim!

En jæja… ég ætla að reyna að fá mér eitthvað að borða… gæti tekið smá tíma…

Permalink 1 ummæli

Í fríi

ágúst 20, 2008 at 6:01 am (Daglegt líf, Nöldur, Skólinn)

Jey! Loksins búinn að vinna hjá Securitas! Sem þýðir að nú get ég farið að sofa á venjulegum tíma eins og annað fólk og vaknað á venjulegum tíma. Það reyndar gengur frekar illa að laga þetta… síðasta vaktin var aðfaranótt föstudagsins 15.ágúst og hér sit ég kl. 6 að morgni á miðvikudegi eftir að hafa náð að sofna í um 1 klst í nótt. Ég er búinn að fá nóg af því að reyna að snúa sólarhringnum við og ætla að gera það sem hefur virkað best hingað til: Vaka í ca. 1 og hálfan sólarhring og fara síðan drulluþreyttur að sofa fyrir miðnætti í kvöld.

Annars er það að frétta að ég fékk mér “venjulega” vinnu, þ.e.a.s. dagvinnu og verð að vinna hjá Rúmfó um helgar í vetur. Það leggst bara ágætlega í mig, held ég. Verður gott að geta átt kvöldin til að slaka á og geta horft á sjónvarp og farið í bíó og svona.

Skólinn byrjar síðan á mánudaginn næsta, þó að nýnemavikan byrji á morgun og við í stjórninni (já, kallinn bara í stjórn kennaranema við HA) ætlum með nýnemana út að borða annað kvöld á Plaza. Það verður vonandi bara stuð.

Síðan er maður að reyna að laga íbúðina til. Tók og tætti í sundur framhliðina á baðinu mínu. Hún var s.s. þannig gerð að einhver hefur í den sett tréplötu þarna fyrir, lokað henni alveg þannig að ekkert loft komst inn (eða út, sem var verra) og síðan bara flísað yfir allt saman. Allavega, flísarnar voru byrjaðar að detta og í ljós komu rakablettir í plötunni. Þannig að ég tók mig til, tók lítinn klaufhamar og tætti plötuna í sundur. Fékk síðan nýja plötu og setti á hana tvær loftristar til að það andi undir baðið. Þannig á að gera þetta! Hitt var bara heimskulegt!

Góða saga, segðu hana aftur…

Jæja, þetta er ágætt í bili. Farinn að horfa á Ísland-Pólland í handbolta ;)

Permalink Rita ummæli

It’s been a long time

ágúst 4, 2008 at 8:27 pm (Daglegt líf, Kvikmyndir, Nöldur)

Vá, held að það hafi aldrei eða allavega sjaldan liðið jafn langur tími á milli blogga hjá mér. En hér kemur það helsta:

Fór til Danmerkur 20.-27.júlí í heimsókn Evu frænku í Köben. Byrjaði ferðin á því að ég fékk í fyrsta skiptið nóg pláss fyrir lappirnar á mér í flugvél, og þetta er Iceland Express sem við erum að tala um! Þannig að ferðin út var fín. Kláraði m.a.s. eina bók á leiðinni.
    Eva og kærastinn hennar, Sigge (jebb, danskur) tóku síðan á móti mér á vellinum. Á meðan ég var þarna gerði ég ýmislegt skemmtilegt. Fór t.d. í Tívólí og í bíó á Dark Knight. Hún var SNILLD!!! Og ég elska kerfið hjá Dönum. Þú kaupir miða og þú færð SÆTISNÚMER! Ekkert smá þægilegt að vita það að þú þarft ekki að slást við fólk um ásættanlegt sæti í salnum þegar öllum er hleypt inn 2 mín áður en myndin byrjar eins og á Íslandi. Jamm, en síðan sátum við eitt kvöld að sumbli og var það alveg ágætt. Þess á milli fór maður bara á flakk um borgina og svitnaði og svitnaði, enda var hitinn alla dagana á bilinu 20-30 gráður.
    Á leiðinni heim fékk ég síðan alvöru Iceland Express vél. Þröngt fyrir lappirnar, feit kona við hlið mér sem gat ekki einu sinni sett sætisborðið fyrir framan sig niður af því að maginn var of stór! Og síðan var lítill öskrandi krakki á bakvið okkur. Ah, almennigsfarrými…

Síðan er versló loksins búin. Var að vinna alla helgina og var það ekkert gífurlega gaman. Mér er illa við ölvað fólk sem þarf að vera með læti og gera eitthvað ótrúlega heimskulegt eins og að ráðast á aðra, brjóta flöskur á götunum, öskra útaf engu og ég veit ekki hvað og hvað. Stundum saknar maður þess að búa á litlum stað eins og Patró. Þar getur maður fengið að vera í friði ef maður vill það, en á Akureyri fær maður skrílinn sendan heim til sín, pakkaðann inn í fallegan pakka með sætri slaufu… eða illa lyktandi, alltof litlum smábíl með of mörgum farþegum. Same diff. Bærinn var síðan eins og vígvöllur eftir hverja nótt, glerbrot og pizzakassar og alls konar drasl út um allt. En síðan segja fréttirnar að helgin hafi gengið fyrir sig eins og best verður á kosið. Já, já… hvað eru nokkur slagsmál, drykkjulæti og tvær nauðganir á milli vina?

Já, ég er bitur, gamall kall…

Permalink 2 Ummæli

Bíladagar á Akureyri

júní 17, 2008 at 4:01 pm (Nöldur)

Þetta er nú meiri helvítis vitleysan…

Allt í algjöru rugli í bænum, menn spólandi út um allan bæ allan sólarhringinn, brjótandi umferðarlög, aðallega með hraðakstri, bejandi mann og annan og til að toppa það ráðast þeir á lögregluna. Á meðan íbúar bæjarins segja núna nóg komið segja skipuleggjendur “Hey, ekki benda á okkur. Það eru allir svo stilltir á daginn þegar við erum með dagkskrá í gangi. Svo er þetta líka svo gott fyrir efnahaginn”. En lítum þá aðeins á þessa fullyrðingu. Fyrir hverja er þetta gott? Lögregluna, sem þarf að eiga við skrílinn eftir að sólin er sest? Búðarstarfsmenn, og þá sérstaklega greyin sem vinna í verslunum sem eru opnar langt fram á nótt eða jafnvel allan sólarhringinn? Íbúana, sem þurfa að þola lætin í fullum unglingum og spólandi vitleysingum? Nei. Þetta er gott fyrir búðarEIGENDUR, sem koma nú ekki nálægt því sjálfir að þurfa að eiga við þetta lið. Þeir bara hirða ágóðann. Þetta hefur síðan í för með sér aukið álag á fólkið sem vinnur þarna og fær ekkert hærra tímakaup eða bónus þó vinnan sé miklu meiri en venjulega.

Síðan er bara sorglegt að sjá alla þessa dýru, fallegu bíla í höndunum á 17-18 ára strákum sem kunna ekki að fara vel með þá, heldur nota þetta sem tæki til að eyðileggja dekk og valda eins miklum hávaða og hægt er. Og í hvert sinn sem bílar æddu fram hjá mér um helgina á fleygiferð og jafnvel í spyrnu við annan bíl beið ég alltaf eftir að þeir myndu skrúfa niður rúðurnar, stinga höfðunum út og öskra: “Vúúú! Sjáið hvað ég er með stórt typpi, yeah!”. Í sjálfu sér er þetta bara sorglegt…

Permalink 3 Ummæli

Bensín

maí 23, 2008 at 10:53 pm (Nöldur)

Djöfulsins rugl er þetta orðið!

Bensín á 160kr líterinn, og bara útlit fyrir að það muni hækka! Mér reiknast svo til að eins og er kostar það mig um 15.000kr að keyra heim á Patró og til baka, en það eru alveg heilir 4 dagar í að ég fari heim, þannig að það getur vel breyst… til hins verra. Ég man nú eftir því að fyrir um ári kostaði það um 10þús fyrir mig að komast heim.

Ég hvet alla sem það geta að hætta að nota bílinn sinn! Fætur og hjól duga vel til að komast á milli staða, auk þess sem að það er hollara og mengar minna. Ég ætla að reyna að nota minn einungis í langferðir eins og þegar ég fer heim á Patró.

Af hverju ættum við að gera þessum olíurisum til geðs og halda bara áfram að kaupa af þeim bensín eins og ekkert sé? Ég held að það sé núna loksins komið að því að menn þurfa að gera það sem átti að gera við mörgum, mörgum árum: Skipta um orkugjafa! Hvað varð um vetnisbílana? Þeir eru búnir að vera í bígerð í mörg, mörg ár, en samt bólar ekki ennþá á þeim á almennum markaði. Og þessir helvítis rafmagnsbílar eru ekki rétta leiðin. Eins og til dæmis þessi G-Wiz bíll. Hann fellur saman við minnsta árekstur og drepur alla sem í honum eru. Hvet alla til að fletta upp árekstraprófinu á honum í Top Gear á youtube. Hann tapaði fyrir eldhúsborði…

Shit… ég er svo PIRRAÐUR á þessu bensínrugli!

Permalink 5 Ummæli

Söngkeppni FF

apríl 13, 2008 at 3:31 pm (Nöldur)

Oj… Þetta… var… ógeðsleg… helgi!

Söngkeppni FF var haldin á Akureyri í ár, sem er ekki, alls ekki gaman ef þú ert öryggisvörður í 10-11 í miðbænum. Ég hef ekki þurft að standa svona lengi í lappirnar frá því um verslunarmannahelgina. Fékk aldrei ráðrúm til að setjast aðeins niður og hvíla mig.
Eitt sem ég fatta ekki við unglinga sem fara á fyllerí, sérstaklega ekki Reykvíkingana sem koma hingað norður að djamma. Af hverju í andskotanum virðist það vera algjört möst að djamma til í minnsta lagi kl.5?? Ég var mikið að velta þessu fyrir mér í nótt, sérstaklega þar sem allir skemmtistaðir loka kl. 4, en fólk hélt áfram að hrynja inn um dyrnar til kl. 7 í morgun! Ég og starfsmaðurinn í 10-11 voru að pæla hvar þetta fólk hefði eiginlega haldið sig milli 4 og 7. Þá er ég líka að tala um að fólkið kom labbandi í hópum og virtist allt koma frá miðbænum. Ekki eins og það hefði verið í heima-partýi.
Nú ætla ég að gera lista yfir það sem fólk ætti ekki að gera þegar það mætir öryggisverði næturlagi í 10-11:
- Ekki spyrja “Hey, hvað gerist ef ég reyni að ræna staðinn?” eða ”Hey, hvað gerist ef ég kýli þig?”. Það er ekki fyndið, því þegar þú spyrð að því eru svona 90% líkur á því að þú sért sá þriðji eða fjórði sem segir það á þessari vakt.
- Ekki nota 10-11 eins og Hlemm á meðan þú bíður eftir leigubíl eða Gísla eða einhverjum öðrum vitleysingi til að sækja þig. Það er virkilega böggandi, sérstaklega þegar það eru ca. 30 manns inni í búðinni og enginn að versla, allir að bíða eftir bíl!
- Ekki reyna að faðma öryggisvörðinn ef þú þekkir hann ekki. Líkur eru á því að hann gæti kýlt þig.

Setning helgarinnar er samt líklega fullur drengur sem kom inn og var rooosalega fyndinn og spurði mig: “Hey, seljið þið ekki eitthvað í glerflöskum hérna? Langaði nefnilega að prófa dálítið sem ég sá í fréttunum”. Ég horfði illilega á hann og hann sagði þá niðurlútur: “Þetta var kannski ekkert fyndið, ha…?”

Permalink 3 Ummæli

Undarleg fréttamennska og bílaplan dauðans

apríl 4, 2008 at 2:47 pm (Nöldur)

Í gær var frétt birt frétt um David Beckham mbl.is þar sem sagt var frá viðbrögðum móður hans við nærfataauglýsingunni sem hann sat fyrir í, sem flestir ættu að kannast við. Ekki frásögu færandi nema að það skrýtna við þetta allt er að kvöldið áður, á skjá 1, var David Beckham í viðtali hjá Jay Leno þar sem hann sagði frá þessu atviki. Fréttin var næstum nákvæmlega eins og hann sagði hana í þættinum, nema að mamma hans var aldrei brjáluð, heldur hringdi bara í hann þegar hún sá auglýsinguna og spurði hann “Hvað varstu að gera?”.
Hérna er fréttin:
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/04/03/mamma_beckhams_brjalud/

Það sem fór samt mest í pirrurnar á mér við þessa frétt er að fyrst þegar hún var sett inn bentu margir á að þetta væri bara copy/paste úr Jay Leno, og að það sýndi bara fram á leti og lélega fréttamennsku að “fréttamenn” gætu bara horft á spjallþætti og búið síðan til lélega frétt úr því daginn eftir. Síðar um daginn var búið að taka út möguleikann á að blogga við fréttina. Hefur greinilega farið eitthvað fyrir brjóstið á téðum fréttamanni að honum væri bent á að hann væri latur í vinnunni.
Það sem ég er allavega að fara með öllu þessu blaðri: Er það ekki orðið andskoti lélegt þegar fréttasíða býður fólki upp á að koma með skoðanir sínar á fréttum sem settar eru þar inn, en síðan geti þeir ákveðið eftir hentisemi hvort fólk megi tjá sig um þær eða ekki. Ég tek fram að ég veit að þegar eitthvað slæmt gerist, t.d. banaslys á Íslandi og þannig að þá getur maður ekki bloggað við fréttina, sem er bara eðlilegt, enda viðkvæmt mál. En að leyfa fólki fyrst að blogga við frétt, en síðan fara í fýlu út í horni og taka þann möguleika í burtu, er það ekki frekar lélegt? Ég bara spyr…

Að seinni parti fyrirsagnarinnar:
Helvítis bílaplanið við HA-Sólborg! Það hefur alltaf verið til vandræða, og nú er það orðið ennþá verra! Áður voru alltof margir bílar miðað við pláss sem var í boði, en núna eru framkvæmdir í gangi þarna vegna nýrrar byggingar á skólalóðinni, og við það minnkaði bílastæðið um heilan helling. En stoppar það fólk í að leggja þarna? Engan veginn. Það sem fer samt mest í mig er að á vissum kafla er vegurinn að stæðinu einbreiður, og sá kafli á að virka fyrir bílaumferð í báðar áttir OG fyrir gangandi fólk, sem nota bene gengur oftast í hópum, þannig að maður kemst engan veginn framhjá þeim. Og annað sem fer í mig: Stæðið er orðið fullt og búið að leggja þannig að maður komist samt á milli á stökum stað. En þá kemur einhver rosa sniðugur og leggur þar sem á greinilega að vera pláss fyrir mann til að komast út af stæðinu, þannig að allt í einu þarftu annað hvort að keyra allan hringinn eða að reyna að bakka út, sem er líka stórhættulegt, því flesta beygjur á stæðinu eru blindar. Lenti næstum í því í gær að jeppi keyrði á mig.

P.s.
Ekkert taka þessu of alvarlega sem ég er að röfla yfir hérna að ofan, sérstaklega um stæðið. Leiddist bara og ákvað að tjá mig.

Permalink 2 Ummæli

DVD vs Divx

febrúar 21, 2008 at 4:57 pm (Kvikmyndir, Nöldur)

Mikið er ég nú sammála þessu spjaldi!
Þegar DVD kom fyrst á markaðinn var eitt helsta slagorðið þeirra:
“Og þú þarft aldrei að spóla til baka!”
En þeir sögðu fólki samt ekki frá því að þú gætir ekki heldur spólað
yfir vissa parta af disknum, og þú þarft að horfa á lista yfir allt sem
er bannaðað gera við þennan diska í hvert skipti sem þú stingur
honum í tækið!Og eins og stendur þarna á spjaldinu, að þá virðast
kvikmyndafyrirtæki halda að fólk sé fífl og nái þessu ekki nema að
þurfa að horfa á þetta í hvert einasta skipti sem það horfir á diskinn!
Málið er bara að ef menn ætla að að afrita diskinn, þá gera þeir það!
Þeir láta þetta ekkert stoppa sig frekar en reykingarmenn með
sígarettupakka sem á stendur “Reykingar drepa”.
Ef eitthvað er
þá eru menn líklegri til að verða pirraðir og afrita myndirnar
ennþá frekar. Það er auðvitað allt mest spennandi sem er bannað.

Permalink 5 Ummæli

Nýtt blogg!

febrúar 13, 2008 at 9:01 pm (Nöldur) ()

Já, nú fékk ég nóg af Blogcentral!

Stundum kemst maður ekki inn á síðuna, stundum save-ast blogg, stundum ekki. Og nú breyttu þeir einhverju í stjórnborðinu og gerðu það
“geðveikt flott” en ég get ekki klikkað í gluggann til að blogga!

Þannig að ég gef bara skít í þá og færði mig hingað, og hananú!

Annars er það að frétta að ég ætla mér að hætta að nota bílinn innanbæjar. Ætla að reyna að
nota hann bara til að komast í körfuna út í Þelamörk og í langkeyrslu á milli bæja og ef ég þarf
að flytja eitthvað í stærra lagi á milli staða.

Ástæða? Þetta helvítis bensínverð! Ég er búinn að fá nóg! Líterinn alveg um 150kr! Ekki ætla
ég að borga að óþörfu undir rassgatið á þeim sem tóku alla þjóðina í rassgatið fyrir örfáum
árum með ólöglegu samráði!

Permalink 7 Ummæli