Í fríi

ágúst 20, 2008 at 6:01 am (Daglegt líf, Nöldur, Skólinn)

Jey! Loksins búinn að vinna hjá Securitas! Sem þýðir að nú get ég farið að sofa á venjulegum tíma eins og annað fólk og vaknað á venjulegum tíma. Það reyndar gengur frekar illa að laga þetta… síðasta vaktin var aðfaranótt föstudagsins 15.ágúst og hér sit ég kl. 6 að morgni á miðvikudegi eftir að hafa náð að sofna í um 1 klst í nótt. Ég er búinn að fá nóg af því að reyna að snúa sólarhringnum við og ætla að gera það sem hefur virkað best hingað til: Vaka í ca. 1 og hálfan sólarhring og fara síðan drulluþreyttur að sofa fyrir miðnætti í kvöld.

Annars er það að frétta að ég fékk mér “venjulega” vinnu, þ.e.a.s. dagvinnu og verð að vinna hjá Rúmfó um helgar í vetur. Það leggst bara ágætlega í mig, held ég. Verður gott að geta átt kvöldin til að slaka á og geta horft á sjónvarp og farið í bíó og svona.

Skólinn byrjar síðan á mánudaginn næsta, þó að nýnemavikan byrji á morgun og við í stjórninni (já, kallinn bara í stjórn kennaranema við HA) ætlum með nýnemana út að borða annað kvöld á Plaza. Það verður vonandi bara stuð.

Síðan er maður að reyna að laga íbúðina til. Tók og tætti í sundur framhliðina á baðinu mínu. Hún var s.s. þannig gerð að einhver hefur í den sett tréplötu þarna fyrir, lokað henni alveg þannig að ekkert loft komst inn (eða út, sem var verra) og síðan bara flísað yfir allt saman. Allavega, flísarnar voru byrjaðar að detta og í ljós komu rakablettir í plötunni. Þannig að ég tók mig til, tók lítinn klaufhamar og tætti plötuna í sundur. Fékk síðan nýja plötu og setti á hana tvær loftristar til að það andi undir baðið. Þannig á að gera þetta! Hitt var bara heimskulegt!

Góða saga, segðu hana aftur…

Jæja, þetta er ágætt í bili. Farinn að horfa á Ísland-Pólland í handbolta ;)

Permalink Rita ummæli

Vinna, vinna, vinna…

maí 5, 2008 at 3:12 pm (Daglegt líf, Skólinn)

Jæja, byrja loks í kvöld í sumarvinnunni. Verð að vinna frá 20-8 næstu 7 daga, fæ síðan frí í einn dag og vinn síðan líklega í 4 daga í röð frá kl. 17-5 og fæ svo 4 daga í frí, vinn síðan 5 daga í röð frá kl. 17-5 og fer svo heim á Patró í ca. viku og verð þar yfir sjómannadagshelgina þar sem planið er að spila ásamt Ævari bróður og Magga úr kennaradeildinni. Þannig að: stuð, stuð!

Er annars farinn að verða pínu óþolinmóður eftir því að fá einkunnir! Ætti að vera búinn að fá allavega 1-2 einkunnir af 4 núna, en neibb. Eitthvað gengur þetta hægt.

Var síðan í Rvk um helgina í fermingu hjá Kaðlínu, systur hennar Kristínar. Ég og Kristín fórum þangað á fimmtudagskvöldið og gerðum ýmislegt skemmtilegt fram að fermingunni á sunnudeginum. Fórum m.a. út að borða á Pizza Hut með Ævari, Maríu, Andra og Lilju og eftir það fórum við í keilu (mínus María reyndar, sem var að læra undir próf í prestnáminu sínu). Ævar Þór tók og rústaði okkur með 25 stigum meira en næsti maður, sem er undarlegt eftir að hann náði 1 stigi, síðan 3 og 3 í fyrstu þrem tilraununum af 10. Held að hann hafi verið að gabba okkur í byrjun. :p

Síðan keyptum við nokkra sniðuga hluti. T.d. svona lítið eldhúsborð á hjólum frá IKEA. Hérna er mynd: http://ikea.is/IKEA/vorur/Default.asp?ew_8_p_id=4640 . Þetta kemur s.s. við hliðina á eldavélinni okkar og verður mjög þægilegt vinnuborð þegar maður er að elda. Síðan keyptum við líka flottan prentara frá Elko, og hér er mynd af honum: http://www.elko.is/elko/product_detail/Default.asp?ec_item_16_searchparam4=guid=fc826ac4-f2f3-49c4-80d0-6def095948b8&product_category_id=804&ew_10_p_id=35252&ec_item_14_searchparam5=serial=IP2600&ec_item_12_searchparam1=categoryid=804&serial=IP2600&ew_13_p_id=35252&status=specific&ec_item_14_searchparam2=serial=IP2600#elko

Jæja, nenni ekki að skrifa meira í bili.

Permalink 1 ummæli

Jibbí!

apríl 29, 2008 at 5:45 pm (Daglegt líf, Skólinn) ()

Skólinn er loksins, loksins búinn! :D

Þetta er búið að vera mjög erfiður mánuður. Endalausar ritgerðir og verkefni út allan apríl og síðan auðvitað hræðilega helgin þegar söngkeppni FF var. Síðan átti ég líka að fá frí núna síðustu helgi til að læra fyrir sálfræðiprófið sem var í morgun, en síðan kom í ljós að þeir gátu bara reddað laugardeginum, þannig að ég varð að vinna föstudagsnóttin. En ég held að þetta hafi alveg gengið ágætlega, þ.e.a.s. prófið í morgun. Myndi giska á að þetta verði kannski 6-7, án þess þó að ég viti nokkuð um það þannig lagað.

En núna… BÚINN!!! :D
Byrja svo að vinna á mánudaginn næsta á næturvöktum hjá Securitas á bíl, sem felst í því að keyra á milli fyrirtækja og fylgjast með því að það sé örugglega ekki búið að brjótast inn eða að starfsfólk hafi gleymt að loka gluggum í lok vinnudagsins og þannig bjóða fólki upp á að koma inn. Verð að vinna aðra hverja viku í sumar, frá 20-8 eða 17-5 í hvort skipti. Ætla svo að liggja bara í sólbaði þess á milli í frívikunum! Ah, sweeeet… :)

Permalink 6 Ummæli