Nýtt lag frá Goody Gumz

júní 21, 2009 at 12:08 pm (Uncategorized)

http://www.reverbnation.com/goodygumz

Allir að hlusta ;)

Permalink Rita ummæli

Kallinn bara kominn á Youtube!

mars 19, 2009 at 9:22 am (Uncategorized)

Siggi Stein postaði þessu myndbandi á youtube.com og á Facebook:

http://www.youtube.com/watch?v=qBpbS6-VBx4

Endilega að kíkja á þetta. Bara alveg fínasta performance, tel ég.

Permalink 1 ummæli

Jamm

mars 17, 2009 at 9:43 am (Uncategorized)

Bíllinn varð fyrir valinu. Sit hérna núna heima hjá Steina Frey og Söru í Reykjavík og mun sækja bílinn eftir ca. 3 tíma.

Permalink Rita ummæli

2009: Hyundai Santa Fe 2001?

mars 10, 2009 at 9:16 am (Uncategorized)

Er þessi kannski málið?

HYUNDAI SANTA FE 4X4

Segið hvað ykkur finnst.

Permalink 3 Ummæli

Bílasaga Aðalsteins

mars 9, 2009 at 12:40 pm (Uncategorized)

2001:

Árið sem ég fékk bílpróf. Byrjaði á svona bíl:

http://www.eltauromotors.com/cars/Mazda%20323%20-89.JPG

Þetta er Mazda 323 árgerð 1986. Ég keypti hana af afa mínum heitnum á 50þús krónur. Hann hélt lífi í ca. 1 ár, en þá gaf vélin eftir. Hún gekk, en bíllinn fór að eyða 20 lítrum á hundraðið. Hafði eytt ca. 7 fyrir það. Hann endaði ævi sína síðan á bílahaugum Patreksfjarðar.

2004:

Næsti bíll sem ég fékk var töluvert betri:

http://myndir.5aur.net/albums/album101/100_0001_IMG_001.sized.jpg

Þetta er Toyota Touring árgerð 1992. Hann fékk ég fyrir ekki neitt frá mömmu og pabba. Æðislegur bíll, komst allt. Ég ákvað síðan að kaupa mér Honduna mína og Ævar bróðir átti að fá Toyotuna. Hann endaði samt hjá stelpu frá Patró og síðasta sem ég heyrði af honum var að hann hefði verið afskráður.

2006:

Nú erum við komin að núverandi bíl:

http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/7/7b/Honda_Accord_1995.jpg

Honda Accord árgerð 1996. Fallegur bíll, ekki því að neita. En undanfarið er hann búinn með alla sénsana sína og kominn tími til að skipta út. Hann eyðir 15-17 lítrum á hundraðið innanbæjar og þarf að gera við handbremsuna, skipta um spindla báðum megin að framan og bremsudiska og bremsuklossa að framan. Síðan í morgun tók bíllinn upp á því að beygja í báðar áttir í einu. Vinstra dekkið til vinstri og hægra dekkið til hægri. Spindilkúlan hafði gefið sig.

Nú er því svo komið að ég vil annan bíl.

2009: ?

Permalink Rita ummæli

Bíll til sölu!

mars 8, 2009 at 10:04 pm (Uncategorized)

Við Kristín ætlum að selja Honduna okkar þar sem við ætlum að fá okkur nýlegri bíl.

Bíllinn er Honda Accord 1996, keyrður 196þús. Hann á eftir að fara í smá viðgerð, sem verður gert fljótlega. Verðhugmynd er ca. 200þús.

Einhver sem hefur áhuga, eða veit um einhvern sem vantar ódýran bíl í ágætis standi?

Permalink 1 ummæli

WWII

febrúar 8, 2009 at 11:47 am (Uncategorized)

Ég þarf víst aftur í stríð við vigtina þessa vikuna…

Vigtun í dag, stóð í stað frá síðasta sunnudag í 105 kg. Nú á að fara enn verr með vigtina og takmarkið er að ná 102 næsta sunnudag.

Permalink 1 ummæli

Goody Gumz – Ætli snjókarl hafi sál?

desember 11, 2008 at 6:37 pm (Uncategorized)

Nú getið þið sem lesið þetta blogg fengið að heyra og m.a.s. eiga jólalagið margumtalaða.
Þeir sem vilja heyra geta sótt lagið hingað:

http://www.reverbnation.com/goodygumz

Vona ég að sem flestir geti notið lagsins. Okkur þótti allavega gaman að taka það upp og vonandi skín það í gegn og nær að smita einhverja.

Permalink 1 ummæli

Nýtt húsgagn

júlí 11, 2008 at 2:52 pm (Uncategorized)

Þar sem ég hef alltaf svo gaman af því að láta fólk vita þegar ég kaupi eitthvað nýtt í íbúðina, þá er hér mynd af því nýjasta:

Þetta er s.s. fallegi, nýji skenkurinn minn, sem tekur sig bara vel út við hlið nýlega sófans míns. ;)

Annars er það að frétta að ég ætla að hætta hjá Securitas eftir sumarið. Þetta er alls ekki eins nice vinna og maður gæti haldið. Vaktirnar eru langar, lotan er löng (ein vika), það verður mjög þreytandi að vera alltaf einn í bíl, mig langar að sofa í rúminu mínu á sama tíma og venjulegt fólk. Auk þess er margt sem manni líkar ekki við þetta starf. T.d. viss ógeð sem búa í fjölbýli sem við erum að vakta og eru þekkt fyrir að drekka alla daga og nætur og ógna fólki með hnífum og labba um hverfið á nærbuxunum, ælandi og mígandi yfir allt. Á svona fólk ekki að vera á hæli, í stað þess að búa eitt í íbúð þar sem það getur haldið hávær partý og ógnað nágrönnunum?

Annars er ég búinn að vinna núna 5 nætur í röð og 3 eftir. Manni líður eins og maður sé búinn að vinna í heilan mánuð. Maður missir allt tímaskyn í þessari vinnu…

Permalink 1 ummæli