Bara 3kg í viðbót!

febrúar 17, 2009 at 2:40 pm (Daglegt líf, Ræktin)

Nú vantar mig bara ca. 3kg upp á til að fá þetta hérna:

Búið að langa í svona í smátíma, og konan lofaði að maður mætti kaupa sér eitt stykki þegar maður næði undir 100kg. Samkvæmt vigtinni í Átaki er ég ca. 103kg (reyndar 101 á vigtinni heima, en við miðum við þá í Átaki) þannig að þetta er alveg að fara að gerast! :)

Permalink 1 ummæli

Breytt plan

febrúar 11, 2009 at 2:12 pm (Ræktin)

Ég mun líklega ekki ná 102 kg eins og stefnan var fyrst. En það er í lagi, það kemur að lokum.

Ég ákvað nefnilega að byrja að lyfta þessa vikuna, þannig að nú minnkaði ég brennsluna úr 60 mín í 30 mín og lyfti síðan eftir það. Og samkvæmt því sem manni hefur verið sagt af svo mörgu fólki mun maður geta komið til með að standa í stað eða jafnvel þyngjast aðeins áður en maður byrjar að léttast, þar sem vöðvar séu þyngri en fita.

Þannig að ég mun líklega ekki stefna á neinar ákveðnar þyngdir fyrir hverja viku núna, heldur setja inn þáverandi þyngd hvern sunnudag.

Permalink Rita ummæli

WWII

febrúar 8, 2009 at 11:47 am (Uncategorized)

Ég þarf víst aftur í stríð við vigtina þessa vikuna…

Vigtun í dag, stóð í stað frá síðasta sunnudag í 105 kg. Nú á að fara enn verr með vigtina og takmarkið er að ná 102 næsta sunnudag.

Permalink 1 ummæli

4 vikur, 5 kíló farin, 15 kíló eftir

febrúar 3, 2009 at 10:02 pm (Ræktin)

Takmark síðustu viku var að fara úr 107,5kg niður í 105kg. Það tókst, með herkjum.

Er ekki með neitt ákveðið takmark fyrir næstu vigtun. Yrði sáttur með 103,5kg.

Get ekki beðið eftir að ná undir 100kg.

Permalink Rita ummæli

Þetta þýðir stríð!

janúar 28, 2009 at 2:44 pm (Ræktin) ()

 

 

Jamm, ég er farinn í stríð við vigtina!

Er s.s. búinn að vera núna í ca. 3 og hálfa viku í ræktinni og vigta mig alltaf á sunnudögum. Staðan hefur verið svona:

Sunnudagur 4.jan, fyrst vigtun: 110 kg, byrjunarþyngd. Ekki gott.

Sunnudagur 11.jan, önnur vigtun: 108,5 kg. Ekkert glæsilegt, en allt í lagi.

Sunnudagur 18.jan, þriðja vigtun: 107 kg. 1,5 kg frá síðustu vigtun. So far so good.

Sunnudagur 25.jan, fjórða vigtun: 107,5 kg! þyngdist um hálft kg!

Þess vegna lýsti ég yfir stríði við vigtina, og hún skal troðin niður í svaðið næsta sunnudag!

Permalink 2 Ummæli

Enn og aftur…

janúar 17, 2009 at 10:14 pm (Daglegt líf)

…er ég byrjaður í átaki.

Áramótaheitið í ár var að ná 90kg þyngd. Var 110kg mánudaginn 5. janúar þegar ég byrjaði. Er nú, 17.janúar, kominn í 107kg. Hef ekki drukkið sopa af gosi síðan 4. janúar.

Svona ofan á þetta áramótaheit að ná 90kg á árinu þá lofaði ég sjálfum mér að ná því fyrir 1. júní. Það er svona ca. 1kg á viku að meðaltali.

Hverjir halda að það takist?

Permalink 1 ummæli

Goody Gumz – Ætli snjókarl hafi sál?

desember 11, 2008 at 6:37 pm (Uncategorized)

Nú getið þið sem lesið þetta blogg fengið að heyra og m.a.s. eiga jólalagið margumtalaða.
Þeir sem vilja heyra geta sótt lagið hingað:

http://www.reverbnation.com/goodygumz

Vona ég að sem flestir geti notið lagsins. Okkur þótti allavega gaman að taka það upp og vonandi skín það í gegn og nær að smita einhverja.

Permalink 1 ummæli

Þannig fór um sjóferð þá

desember 11, 2008 at 12:50 am (Daglegt líf, Tónlist)

Lagið komst ekki áfram í jólalagakeppninni… :p

En við látum það ekki stoppa okkur. Lagið á að fara í almenna spilun á Rás 2 og líka búið að senda eintak til Bylgjunnar og Voice. Síðan er bara að sjá hvað verður úr því. Hvet fólk endilega til að senda inn óskalagaósk (fyndið orð) í Poppland og biðja um “Ætli snjókarl hafi sál?” með Goody Gumz ef það vill hjálpa okkur að koma laginu til landans. ;)

Þó ég sé kannski ekki alveg hlutlausasti aðilinn í þessu máli og því ekki endilega hægt að taka mark á mínu áliti, að þá finnst mér þetta eitthvað loðin lög sum sem komust í úrslit. Bara sum ekki góð. Endilega hlustið hér:
http://www.ruv.is/heim/vefir/ras2/poppland/jolalagakeppni/

Annars er það að frétta að prófin eru búin. Djöfull er þetta leiðinlegur andskoti… En er sem betur fer kominn í gott jólafrí núna, þó ég verði reyndar að vinna í Rúmfó 13.-20.des. Eftir það er það bara heim í sæluna á Patró og slaka á áður en nýtt ár tekur við.

Permalink Rita ummæli

Jólalagakeppni

desember 2, 2008 at 1:44 am (Tónlist)

Ég, ásamt öðrum, mun taka þátt í Jólalagakeppni rásar 2 hjá Popplandi í ár.

Ég kom heim frá Reykjavík í gær þar sem ég eyddi helginni í stúdíói með einvala liði tónlistarmanna sem heita Ómar, Steini Freyr og Ævar Þór.

Forsagan er sú að ég ákvað fyrir mánuði að taka þátt eftir að hafa heyrt auglýsingu hjá Rás 2. Ævar Þór heyrði af því og skrifaði óumbeðinn texta að jólalagi, sem var mjög fallega gert af honum. Ég samdi síðan lagið, sem samanstóð af píanóhljómum og einfaldri laglínu. Þegar Ómar svo heyrði af því bauðst hann til að vinna í laginu með mér og bætti laglínuna og tók upp demó. Steini Freyr bauðst síðan til að hjálpa okkur að taka upp og hljóðblanda lagið ef við gætum komið til Reykjavíkur. Við slógum bara til og fórum viku síðar til hans og eyddum helginni í að taka upp lagið. Við notuðum þá tækifærið fyrst við vorum fyrir sunnan og fengum Ævar til að syngja lagið, enda töldum við lagið henta röddinni hans vel.

Ekkert smá gott að eiga svona góða vini sem eru svona viljugir til að taka þátt í þessu með manni. Útkoman varð betri en maður hafði þorað að vona og komu allir með álit og hugmyndir að útsetningunni.

Ég tek samt fram að fyrst fer lagið í gegnum forval, þar sem dómnefnd velur 6 lög sem fara í úrslit í Popplandi og síðan verður netkosning meðal hlustenda. Við erum mátulega bjartsýnir og vonum bara hið besta.

Permalink Rita ummæli

AC/DC

nóvember 25, 2008 at 4:01 pm (Tónlist)

Sko gömlu kallana. Orðnir tæplega eða rétt rúmlega sextugir og geta ennþá rokkað.

http://www.youtube.com/watch?v=bX2xbqWtyJU

Rihanna, Chris Brown, Kanye West og ég veit ekki hvað þetta hip hop lið heitir sem var verið að verðlauna á American Music Awards um daginn hefur ekkert í þessa gaura.

Permalink Rita ummæli

« Previous page · Next page »